Yvonne Strahovski

Yvonne Strahovski (fædd 30. júlí 1982) er áströlsk leikkona. Hún hefur birst í nokkrum áströlskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Sarah Walker í þáttunum Chuck.

Yvonne Strahovski
Upplýsingar
FæddYvonne Strezechowski
30. júlí 1982 (1982-07-30) (41 árs)
Helstu hlutverk
Sarah Walker í Chuck (sjónvarpsþáttur)

Æska

Strahovski fæddist í Marobubra, í úthverfi Sydney, sem Yvone Strezechowski og á hún pólska foreldra sem höfðu flúið Pólland. Stafsetning nafns hennar þótti of erfið og varð Yvonne Strahovski leikaranafn hennar þegar hún byrjaði að leika í Chuck og fann framleiðandanum Josh Schwartz það best fyrir hennar sakir að breyta nafninu en það varð einnig auðveldara að bera nafnið hennar fram.

Yvonne gekk í Santa Sabina menntaskólann í Strathfield. Hún útskrifaðist úr háskólanum í Vestur-Sydney með B.A. gráðu í framkomu.

Ferill

Yvonne talar reiprennandi pólsku og notaði þá kunnáttu í þáttunum „Chuck Versus the Wookiee“, „Chuck Versus the Three Words“ og „Chuck Versus the Honeymooners“. Þrátt fyrir að hún leiki Ameríkana í þáttunum talaði hún með miklum áströlskum hreim í „Chuck Versus the Ex“.

Einkalíf

Yvonee átti í sambandi við ástralska leikarann Matt Doran á árunum 2006-2007.

Árið 2009 varð hún í 94. sæti á lista Maxim yfir 100 heitustu konur í heimi.

Hlutverk

Kvikmyndir

ÁRKVIKMYNDHLUTVERKA.T.H.
2007GoneSondrasem Yvonne Strzechowski
Persons Of InterestLarasem Yvonne Strzechowski
2008The PlexSarah
The CanyonLoriÚtgáfudagur: 23. október 2009
2009I Love You TooAliceí upptöku
Love and Mortarí upptöku
Shadows from the SkyJill

Sjónvarp

ÁRÞÁTTARÖÐHLUTVERKÞÁTTUR/ÞÆTTIRA.T.H.
2004Double the FistSuzieEinnÞáttur: "Fear Factory"
2005-2006headLandFreya Lewis13
2007Sea PatrolMartina RoyceEinnÞáttur: "Cometh the Hour"
2007 - 2012ChuckSarah Walker91
2012DexterHannah Mckay

Heimildir

Fyrirmynd greinarinnar var „Yvonne Strahovski“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt júlí 2009.