Valsvöllur

(Endurbeint frá Vodafonevöllur)

Valsvöllur (einnig þekktur sem Hlíðarendi og áður Vodafonevöllurinn) er knattspyrnuvöllur á Íslandi. Hann er heimavöllur Vals. Hann tekur 1201 manns í sæti og 1264 manns í stæði.[1]

Fyrsti leikurinn

Fyrsti leikurinn á vellinum var 25. maí 2008 á 140 ára afmæli séra Friðriks, stofnanda Vals. Í þeim leik skoraði Helgi Sigurðsson fyrsta markið á 41 mínútu leiksins. Síðara mark Valsmanna í leiknum var skorað af Pálma Rafn Pálmassyni. Byrjunarlið Vals í þeim leik var:

Ath: Fánar eru tákn fyrir það þjóðerni sem skráð eru hjá FIFA. Leikmenn gætu haft fleiri en eitt ríkisfang.

Nú.StaðaLeikmaður
GKKjartan Sturluson
DFBirkir Már Sævarsson
DFAtli Sveinn Þórarinsson
DFGunnar Einarsson
DFRene Carlsen
MFSigurbjörn Hreiðarson (fyrirliði)
MFPálmi Rafn Pálmasson
MFBaldur Bett
MFBjarni Ólafur Eiríksson
FWHelgi Sigurðsson
FWHafþór Ægir Vilhjálmsson
Nú.StaðaLeikmaður
Ágúst Bjarni Garðarsson
Einar Marteinsson
Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Geir Brynjólfsson
Baldur Þórólfsson
Rasmus Hansen
Albert Brynjar Ingason

Tilvísanir