Taxodium mucronatum

Taxodium mucronatum[2] er tegund af barrtré sem er ættuð frá Mexíkó og Gvatemala.[3]

Taxodium mucronatum

Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki:Jurtaríki (Plantae)
Fylking:Berfrævingar (Pinophyta)
Flokkur:Barrtré (Pinopsida)
Ættbálkur:Pinales
Ætt:Einisætt (Cupressaceae)
Ættkvísl:Taxodium
Tegund:
D. mucronatum

Tvínefni
Taxodium mucronatum
Ten.
Útbreiðsla
Útbreiðsla
Samheiti

Taxodium distichum var. mucronatum (Ten.) A.Henry
Taxodium mexicanum Carrière
Taxodium distichum var. mexicanum (Carrière) Gordon
Cuprespinnata mexicana (Carrière) J.Nelson

Lýsing

Þetta er stórt sígrænt eða hálfsígrænt tré, að 40 m hátt með 1 til 3 m stofnþvermál (einstaka sinnum mun meira; sjá fyrir neðan). Barrnálarnar eru í skrúfgang eftir greininni, undnar í grunninn svo að þær eru í flötum röðum sitt hvorum megin á sprotanum, 1 - 2 sm langar og 1 - 2 mm breiðar. Könglarnir eru egglaga, 1,5 - 2,5 sm langir og 1 - 2 sm breiðir.Ólíkt hinum tegundunum tvemur (Taxodium distichum og Taxodium ascendens) myndar hún sjaldan sýprushné á rótunum.[4] Tré frá hálendi verða sérstaklega gild.

Eitt tré: Árbol del Tule í Santa María del Tule, Oaxaca, Mexíkó, gildasta tré í heimi með 11,42 m í þvermál. Nokkur önnur með 3 til 6m í þvermál eru þekkt. Næstgildasta tréð er the Big Baobab, af tegundinni Adansonia digitata.


"El Árbol del Tule", in Santa María del Tule, Oaxaca, Mexico

Blendingar

  • Taxodium × ‘LaNana’ (T. distichum × T. mucronatum)[5]
  • Taxodium 'Zhongshansa' (T. distichum × T. mucronatum)[6]


Tilvísanir

Heimildir

  • Eguiluz T. 1982. Clima y Distribución del género pinus en México. Distrito Federal. Mexico.
  • Rzedowski J. 1983. Vegetación de México. Distrito Federal, Mexico.
  • Martínez, Maximinio. 1978. Catálogo de nombres vulgares y científicos de plantas mexicanas.

Tenglar

  • Taxodium mucronatum (PDF). Digital Representations of Tree Species Range Maps from "Atlas of United States Trees" by Elbert L. Little, Jr. (and other publications). United States Geological Survey. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 30. ágúst 2012.
  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.