Skarðshreppur (Skagafjarðarsýslu)
- Síða
- Spjall
Skarðshreppur var hreppur vestan til í Skagafjarðarsýslu, kenndur við bæinn Skarð í Gönguskörðum, undir Tindastóli.
Hreppurinn varð til ásamt Sauðárkrókshreppi árið 1907 þegar Sauðárhreppi var skipt í tvennt. Í Skarðshreppi voru þrjár sveitir: Yst er Reykjaströnd, undir Tindastól austanverðum. Þá eru Gönguskörð, fjalldalir sunnan Tindastóls og loks Borgarsveit, byggðarlagið sunnan Sauðárkróks.
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Skarðshreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.
Síðasta hreppsnefnd Skarðshrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Andrés Helgason, Jón Eiríksson, Sigrún Aadnegaard, Sigurður Guðjónsson og Úlfar Sveinsson.
Oddvitar [1]