Sean Murray

Sean Murray (fæddur Sean Harland Murray 15. nóvember 1977) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Timothy McGee í NCIS.

Sean Murray
Sean Murray í október 2012
Sean Murray í október 2012
Upplýsingar
FæddurSean Harland Murray
15. nóvember 1977 (1977-11-15) (46 ára)
Ár virkur1991 -
Helstu hlutverk
Timothy McGee í NCIS

Einkalíf

Murray fæddist í Bethesda, Maryland í Bandaríkjunum og eyddi æskuárum sínum nálægt Coffs Harbour í Nýju Suður-Wales, Ástralíu.[1] Murray giftist Carrie James í nóvember 2005 og saman eiga þau tvö börn.[2]

Fjölskylda

Murray er stjúpsonur framleiðandans Donald Bellisario sem er höfundurinn að NCIS. Yngri bróðir hans Chad M. Murray er framleiðandi við þáttinn, ásamt því að móðir hans Vivienne lék í fyrstu þáttaröðinni sem hin dularfulla ræðhærða kona sem Gibbs sást með. Hálfsystir hans Troian Bellisario lék systur Murrays, Sarah McGee og hálfbróðir hans Michael Bellisario lék Charles „Chip“ Sterling í þriðju þáttaröðinni.[3]

Ferill

Fyrsta hlutverk Murray var í sjónvarpsmyndinni Backfield in Motion frá 1991. Lék í galdramyndinni Hocus Pocus frá 1993 með Betty Midler og Söru Jessicu Parker. Honum var boðið hlutverk í sjónvarpsþættinum Harts of the West sem Zane Grey Hart og kom fram í 15 þáttum. Murray var gestaleikari í sjónvarpsþættinum JAG sem stjúpfaðir hans Bellisario var framleiðandi að. Hefur síðan 2003 leikið NCIS alríkisfulltrúann Timothy McGee í sjónvarpsþættinum NCIS.

Kvikmyndir og sjónvarp

Kvikmyndir
ÁrKvikmyndHlutverkAthugasemd
1992Too RomanticTim
1993This Boy´s LifeJimmy Voorhees
1993Hocus PocusThackery Binx
Sjónvarp
ÁrTitillHlutverkAthugasemd
1991Backfield in MotionJoe Jr.Sjónvarpsmynd
1991Civil Warsónefnt hlutverkÞáttur: The Pound and the Fury
1993River of Rage: The Taking of Maggie KeeneMatthew KeeneSjónvarpsmynd
1994ZZ Top: BreakawayFarþegi í jeppaSjónvarpsmynd
1993-1994Harts of the WestZane Grey Hart15 þættir
1995Trial by FireDannySjónvarpsmynd
1995Silk StalkingsDerek PastonÞáttur: Sweet Punishment
1995ERBret MaddocksÞáttur: A Miracle Happens Here
1996The LotteryHenry WatkinsSjónvarpsmynd
1996For My Daughter´s HonorRalphSjónvarpsmynd
1996Fall into DarknessJerry PriceSjónvarpsmynd
1997The Sleepwalker KillingChristopher LaneSjónvarpsmynd
1999Touched by an AngelWilliam ´Will´ HellerÞáttur: My Brother´s Keeper
2000Boston PublicDavidÞáttur: Chapter Three
2001Spring Break LawyerNick KepperSjónvarpsmynd
1998-2001JAGDanny Walden6 þættir
2002The Random YearsTodd MitchellÞáttur: Corrupting Jacob
2003-til dagsNCISNCIS alríkisfulltrúinn Timothy McGee171 þættir

Verðlaun og tilnefningar

Young Artist verðlaunin

  • 1994: Tilnefndur sem besti ungi leikari í grínmynd fyrir Hocus Pocus.
  • 1994: Tilnefndur sem besti ungi leikari í sjónvarpsseríu fyrir Harts of the West.

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar