Scarlett Johansson

bandarísk leikkona

Scarlett I. Johansson (fædd 22. nóvember 1984) er bandarísk leik- og söngkona. Johansson lék í fyrstu myndinni sinni árið 1994 en það var North og var hún tilnefnd til verðlauna fyrir frammistöðu sína. Scarlett varð frægari árið 1998 eftir að hafa leikið í myndinni The Horse Whisperer og fékk mikið lof gagnrýnenda fyrir hlutverk sitt í Ghost World árið 2001 en það hlutverk gerði hana fræga og vann hún Chlotrudis verðlaunin fyrir vikið.

Scarlett Johansson
Scarlett Johansson árið 2012
Scarlett Johansson árið 2012
Upplýsingar
FæddScarlett I. Johansson
22. nóvember 1984 (1984-11-22) (39 ára)

Hún skipti yfir í fullorðinshlutverk með marglofaðri frammistöðu sinni í mynd Sofiu Coppola, Lost in Translation á móti Bill Murray og vann hún BAFTA verðlaun, og Girl with a Pearl Earring en báðar myndirnar færðu henni Golden Globe tilnefningu árið 2003. Hlutverk hennar í A Love Song for Bobby Long færði henni þriðju Golden Globe tilnefninguna fyrir bestu leikkonu. Eftir að hafa leikið í The Island fékk Scarlett náð fyrir augum gagnrýnenda og fjórðu Golden Globe tilnefninguna, fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki, fyrir leik sinn í mynd Woody Allen, Match Point. Hún fylgdi henni eftir með annarri mynd Allen, Scoop, með Hugh Jackman.

Eftir að hafa leikið í misheppnuðu myndinni Nanny Diaries árið 2007 fékk ferill Johansson endurvakningu að hálfu gagnrýnenda með myndinni The Other Boleyn Girl árið 2008, þar sem hún lék á móti Natalie Portman og Eric Bana og Woody Allen myndinni Vicky Christina Barcelona með Javier Bardem og Penélope Cruz. Hún fékk góða dóma fyrir leik sinn í He's Just Not That Into You árið 2009 og lék í Iron Man 2 ásamt Robert Downey Jr. og Samuel L. Jackson.

20. maí 2008 gaf Scarlett út sína fyrstu plötu, Anywhere I Lay My Head, þar sem hún söng lög Tom Waits. Önnur platan hennar, Break Up með Pete Yorn kom út í september 2009.

Árið 2010 lék hún ofurnjósnarann Black Widow (Natasha Romanov) í Marvel-ofurhetjumyndinni Iron Man 2 og endurtók hlutverkið í ofurhetjumyndinni The Avengers.

Æska

Scarlett árið 2007

Kvikmyndir

ÁrMyndHlutverkAthugasemdir
1994NorthLaura Nelson
1995Just CauseKate Armstrong
1996Manny & LoAmandaTakmörkuð upplag
Tilnefnd— Independent Spirit verðlaunin fyrir besta frammistöðu í aðalhlutverki
If Lucy FellEmily
1997Home Alone 3Molly Pruitt
FallLítil stelpa
1998The Horse WhispererGrace MacLeanTilnefnd-Verðlaun Samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Chicago: Vænlegasti nýlðinn
1999My Brother the PigKathy Caldwell
2001The Man Who Wasn't ThereRachael 'Birdy' Abundas
Ghost WorldRebeccaChlotrudis verðlaun: Besta leikkona í aukahlutverki
Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Toronto: Besta leikkona í aukahlutverki
Tilnefnd—Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda á netinu: Besta leikkona í aukahlutverki
An American RhapsodyZsuzsi/Suzanne Sandor (15 ára)
2002Eight Legged FreaksAshley Parker
2003Lost in TranslationCharlotteBAFTA verðlaun: Besta leikkona í aðalhlutverki
Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Boston: Besta leikkona
Tilnenfnd—Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í útvarpi: Besta leikkona í aukahlutverki
Tilnefnd-Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Chicago: Besta leikkona
Tilnefnd-Chlotrudis verðlaun: Besta leikkona
Tilnefnd—Golden Globe verðlaun: Besta leikkona í söngleik/gamanmynd
Tilnefnd:—Írsku kvikmynda-og sjónvarpsverðlaunin: Besta erlenda leikkona
Tilnefnd-Verðlaun kvikmyndagagnrýnenda á netinu: Besta leikkona
Tilnefnd—Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Phoenix: Besta leikkona
Tilnefnd:Satellite verðlaun: Besti leikari-söngleikur/gamanmynd
Girl with a Pearl EarringGrietTilnefnd-BAFTA verðlaun: Besta leikkona í aðalhlutverki
Tilnefnd-British Independent kvikmyndaverðlaunin: Besta leikkona
Tilnefnd: Golden Globe verðlaun: Besta leikkona í dramakvikmynd
Tilnefnd-London Fil Critics Circle verðlaun: Besta leikkona
Tilnefnd-Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Phoenix: Besta leikkona
2004A Love Song for Bobby LongPursy WillTakmarkað upplag
Tilnefnd-Golden Globe verðlaun: Besta leikkona í Dramakvikmynd
A Good WomanMeg WindermereTakmarkað upplag
The SpongeBob SquarePants MovieMindyRödd
The Perfect ScoreFrancesca Curtis
In Good CompanyAlex Foreman
2005The IslandJordan Two Delta/Sarah Jordan
Match PointNola RiceTilnefnd-Verðlaun samtaka kvikmyndagagnrýnenda í Chicago: Besta leikkona í aukahlutverki
Tilnefnd-Golden Globe verðlaun: Besta leikkona í aukahlutverki
2006ScoopSondra Pransky
The Black DahliaKatherine 'Kay' Lake
The PrestigeOlivia Wenscombe
2007The Nanny DiariesAnnie Braddock
2008The Other Boleyn GirlMary Boleyn
Vicky Cristina BarcelonaCristina
The SpiritSilken Floss
2009He's Just Not That into YouAnna
2010Iron Man 2Natalie Rushman/Black Widow
  Þetta æviágrip sem tengist leikurum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.