Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Íslands

Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneyti Íslands er eitt af ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Æðsti yfirmaður ráðuneytisins er samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra og æðsti embættismaður þess er ráðuneytisstjóri. Ráðuneytið sér um samgöngur, fjarskipti, netöryggi, og sveitarstjórnar- og byggðamál.[2]

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
RáðherraSigurður Ingi Jóhannsson
RáðuneytisstjóriRagnhildur Hjaltadóttir[1]
StaðsetningSölvhólsgötu 7
101 Reykjavík
Vefsíða
Dómsmálaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið

Frá 2011 til 2017 fór innanríkisráðuneytið með málefni samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins.

Málefni ráðuneytisins

Ráðuneytið fer með þau mál er varða[3]:

  • Skipulag samgangna og flutninga á landi, í lofti og á sjó.
  • Vegi og vegagerð.
  • Umferð og eftirlit með ökutækjum.
  • Flug og flugvelli, þ. á m. Keflavíkurflugvöll.
  • Siglingar, þ. á m. atvinnuréttindi og lögskráningu sjómanna.
  • Vita, hafnir og sjóvarnir.
  • Öryggi í samgöngum og slysarannsóknir þeim tengdar.
  • Fjarskipti.
  • Póstþjónustu.
  • Sveitarstjórnarmál, þar á meðal stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga, tekjustofna og fjármál þeirra og mörk sveitarfélaga.
  • Byggðamál.
  • Almannaskráningu og lögheimili, fasteignaskrá og fasteignamat,

Fyrri heiti

  • 1904–1917 Málefni undir stjórnarráðinu, ekki var skipaður sér ráðherra.
  • 1917–1921 Atvinnu- og samgöngudeild.
  • 1921–1947 Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið.
  • 1947–2009 Samgönguráðuneytið
  • 2009–2011 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið.
  • 2011–2017 Ráðuneytið var sameinað dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu og innanríkisráðuneytið stofnað.
  • 2017 Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneytið verður aftur til eftir skiptingu innanríkisráðuneytisins í samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðuneyti og dómsmálaráðuneyti.[4]

Sjá einnig

Tilvísanir