Rex Linn

Rex Maynard Linn (fæddur 13. nóvember 1956) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Frank Tripp í CSI: Miami

Rex Linn
FæddurRex Maynard Linn
13. nóvember 1956 (1956-11-13) (67 ára)
Ár virkur1986 -
Helstu hlutverk
Frank Tripp í CSI: Miami

Einkalíf

Linn fæddist í Hansford County í Texas, Bandaríkjunum. Árið 1969 fluttist fjölskylda hans til Oklahoma borgar og stundaði hann nám við Heritage Hall og seinna meir við Casady School, sem er einkarekinn skóli tengdur Episcopal kirkjunni. Eftir að hafa séð Jack Nicholson leika í One Flew Over the Cuckoo's Nest árið 1975, tilkynnti hann að hann ætlaði sér að verða leikari. Því miður þá minnkaði líkur hans á leikaraferli strax í menntaskóla, þegar við eina færsluna á Fiddler On The Roof, eyðilagði hann næstum því sviðsmyndina í einu af dansatriðunum, Linn var beðinn um að hætta í leikritinum af leikstjóranum. Honum var sagt að nota orkuna sína einhversstaðar annarsstaðar. Lauk hann námi við Oklahoma-ríkisháskólann árið 1980 með gráðu í Útvarpi/Sjónvarpi/Kvikmyndum.

Linn býr í Sherman Oaks, Kaliforníu, með hundunum sínum, Jack and Choctaw, ásamt því að vera harður aðdáandi University of Texas Longhorns og hefur m.a. tekið sér frí frá CSI: Miami til þess að mæta á 2005 Rose Bowl leikinn þar sem lið hans var að spila gegn University of Southern California.

Linn er ákafur stuðningsmaður barnahjálparstarfa og hefur keppt í stjörnu gólfmótum fyrir barnarhjálpir, liðgigtarsamtök og fyrir blindrasamtök.

Ferill

Fyrsta hlutverk hans fékk hann í myndinni, Dark Before Dawn, sem var framleidd af vini hans Edward K. Gaylord II. Það sem mestu skipti máli var að hann varð meðframleiðandi að myndinni. Þetta gaf honum tækifæri á að kynnast hinni hliðinni á kvikmyndum sem átti eftir að hjálpa honum í heimi leikara.

Árið 1989, þá var hann ráðinn í fyrsta stóra hlutverkið sem raðmorðinginn Floyd Epps, í Night Game, ásamt Roy Scheider. Eftir myndina og hlutverk sem fógeti í Young Riders ákvað hann að flytjast vestur til Los Angeles. Fyrstu þrjú árin stundaði hann leiklist hjá Silvana Gallardo við Studio City og vann mikið með vini sínum Robert Knott sem einnig var leikari, við ýmsa byggingarvinnu.

En smátt og smátt þá byrjaði hann að fá hlutverk þar á meðal í My Heroes Have Always Been Cowboys (1991), Thunderheart (1992), og Sniper (1993), ásamt gestahlutverkum í sjónvarpsþáttum í Northern Exposure, Raven, og The Adventures of Brisco County Jr. Í apríl 1992 þá fékk hann stórahlutverkið sem fulltrúi fjármálaráðuneytisins, Richard Travers, í myndinni Cliffhanger. Myndin kom Rex á kortið.

Síðan Cliffhanger, þá hefur Rex komið fram í yfir 35 kvikmyndum sem eykst með hverju ári. Frá 2002-2012 lék hann rannsóknarfulltrúanns Sgt. Frank Tripp í CSI: Miami.

Kvikmyndir og sjónvarp

Kvikmyndir
ÁrKvikmyndHlutverkAthugasemd
1986Shadows on the Wallónefnt hlutverksem Rex Lynn
1988Bonanza: The Nex GenerationCeaseSjónvarpsmynd
1988Dark Before DawnDon Hayse
1989The Bounty HunterLögreglumaður nr. 1sem Rex Lynn
1989Oklahoma PassageQuantrillSjónvarps míní-sería
1989Night GameEpps
1989Desperado: The Outlaw WarsLoganSjónvarpsmynd
sem Rex M. Linn
1990Across Five AprilsJake
1991My Heroes Have Always Been CowboysGestur á matsölustað
1991The Gambler Returns: The Luck of the DrawHenrySjónvarpsmynd
1992In the Line of Duty: Siege at MarionFógetinn Ron GraySjónvarpsmynd
1992ThunderheartAlríkisfulltrúi
1993SniperOfurstióskráður á lista
1993CliffhangerTravers
1994Independence DayNágranni
1994Iron WillJoe McPherson
1994Confessions: Two Faces of EvilGleasonSjónvarpsmynd
1994Wyatt EarpFrank McLaury
1994Clear and Present DangerWashington rannsóknarfullrúi
1994Drop ZoneBobby
1995Perfect AlibiBarþjónn
1995Cutthroat IslandHerra Blair
1996Public EnemiesAl Spencer
1996Tin CupDewey
1996The Long Kiss GoodnightMaður í rúmi
1996Ghosts of MississippiMartin Scott
1997Last Stand at Saber RiverBill DancySjónvarpsmynd
1997BreakdownFógetinn Boyd
1997The PostmanMercer
1997AloneTravis Floyd
1998The Odd Couple IIJayJay
1998Black Cat RunFógetinn Ben Bronte
1998Rush HourAlríkisfulltrúinn Daniel Whitney
1999Blast from the PastDave
1999The Jack BullShelby DykesSjónvarpsmynd
1999A Murder on Shadow MountainRannsóknarfulltrúinn BonneySjónvarpsmynd
1999InstinctVörðurinn Alan
1999Y2KVerkstjóri kjarnorkuverksmiðjuSjónvarpsmynd
2001Crossfire TrailLuke TaggartSjónvarpsmynd
2001Ghosts of MarsYared
2002The Salton SeaRannsóknarfulltrúinn Bookman
2002The Round and RoundFógeti
2003Monte WalshHat HendersonSjónvarpsmynd
2003The HuntedPowell
2003Dry CycleJeddidah
2003Cheaper by the DozenÞjálfarinn Bricker
2004After the SunsetFulltrúinn Kowalski
2005The ZodiacJim Martinez
2005American GunEarl
2006Two Tickets to ParadiseKarl
2006AbominableBóndinn Hoss
2007The Grand Ride of the Abernathy BoysÞulur
2008AppaloosaClyde Stringer
2008Trial by FireForingi
2009The Macabre World of Lavender WilliamsFógetinn Murdstone
2012Atlas Shrugged II: The StrikeKip Chalmers
2012Django UnchainedTennessee HarryKvikmyndatökum lokið
2013Devil´s KnotRannsóknarfulltrúinn Gary GitchellKvikmyndatökum lokið
2013FlutterFógetinn ColeÍ eftirvinnslu
Sjónvarp
ÁrTitillHlutverkAthugasemd
1990The Young RidersFógetiÞáttur: Hard Time
1991Northern ExposureMartinÞáttur: All Is Vanity
1991FBI: The Untold StoryChristopher WilderÞáttur: Millionaire Murderer
1991Doogie Howser, M.D.BillyÞáttur: It´s a Wonderful Laugh
1993Ravenónefn hlutverkÞáttur: Wipe-Out
1994The Adventure of Brisco County Jr.Mountain McClainÞáttur: Bounty Hunter´s Convention
1997Nash Bridgeónefnt hlutverkÞáttur: Sniper
1996-19973rd Rock from the SunChuck / WebberÞáttur: Frozen Dick (1996)
Þáttur: Tom, Dick and Mary (1997)
1998Vengeance UnlimitedJ.J.Þáttur: Eden
1999Walker, Texas RangerFógetinn Lester StahlÞáttur: Way of the Warrior
1999Snoopsónefnt hlutverkÞáttur: A Criminal Mind
2000The PretenderFulltrúinn Ellis TalbotÞáttur: Spin Doctor
2000ProfilerFulltrúinn Ellis TalbotÞáttur: Clean Sweep
1995-2000JAGMaj. Mark 'Falcon' Sokol / Lt. Mark 'Falcon' Sokol6 þættir
2000-2001The FugitiveKarl Vasick5 þættir
2004 - 2012CSI: MiamiRannsóknarfulltrúinn Frank Tripp232 þættir
2007Saving GraceWileyÞáttur: And You Wonder Why I Lie

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar