Pauley Perrette

Pauley Perrette (fædd 27. mars 1969) er bandarísk leikkona, rithöfundur og talsmaður borgararéttinda, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Abby Sciuto í NCIS.

Pauley Perrette
Pauley Perrette
Pauley Perrette
Upplýsingar
FæddPauley Perrette
27. mars 1969 (1969-03-27) (55 ára)
Ár virk1994 -
Helstu hlutverk
Abby Sciuto í NCIS

Einkalíf

Perrette fæddist í New Orleans, Louisiana í Bandaríkjunum og fluttist mikið um þegar hún var yngri vegna vinnu föðurs hennar. Hún stundaði nám við Valdosta State háskólann í Valdosta, Georgíu þar sem hún lærði félagsfræði, sálfræði og afbrotafræði.[1]

Perrette styður mörg góðgerðarsamtök, þar á meðal dýrasamtök, Rauða krossinn, borgararéttindi og réttindi samkynhneigða. Perrette var gift leikaranum og tónlistarmanninum Coyote Shivers í þrjú ár. Hún giftist kvikmyndatökumanninn Michael Bosman í febrúar 2009.[2][3]

Tónlist

Perrette er lagahöfundur og söngvari sem hefur spilað í mörgum hljómsveitum og hefur gefið út nokkra geisladiska. Tók hún upp lagið Fear meðsamið af Tom Polce undir nafninu Stop Making Friends. Lagið var gefið út á NCIS: The Official TV geisladisknum sem var gefinn út 10. febrúar 2009.[4] Hún var einnig aðalsöngvari hljómsveitarinnar Lo-Ball sem Pauley P[5]. Lagið Can't Get Me Down eftir hljómsveitina má heyra í kvikmyndinni Legally Blonde. Perrette kom fram í tónlistasmyndbandinu The Unnamed Feeling með Metallicu.

Ferill

Perrette hefur komið fram í mörgum kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, auglýsingum, tónlistamyndböndum og stuttmyndum gegnum árin. Fyrsta hlutverk hennar var í sjónvarpsþættinum ABC Afterschool Specials frá 1994. Hefur kom fram sem gestaleikari í sjónvarpsþáttum á borð við: Frasier, The Drew Carey Show, Philly, 24 og CSI: Crime Scene Investigation. Perrette hefur síðan 2003 leikið réttarrannsóknarsérfræðinginn Abby Sciuto í sjónvarpsþættinum NCIS.

Kvikmyndir og sjónvarp

Kvikmyndir
ÁrKvikmyndHlutverkAthugasemd
1997The Price of KissingReneesem Pauley P.
1998Hand on the PumpHi-Girl
1998Hoofboyónefnt hlutverk
2000CivilityCarolyn
2000Almost FamousAlice Wisom
2001My First MisterBebe
2002The RingBeth
2002Hungry HeartsCokie Conner
2003Ash TuesdayGina Mascara
2003Brother BearÁstfanginn kvennbjörnTalaði inn á
2004Cut and RunJolene
2004A Moment of GraceDr. Grace Peters
2005Potheads: The MovieLuLu
2009To Comfort YouTheresa
2010Satan Hates YouMarie Flowers
2010The Singularity Is NearRamona
Sjónvarp
ÁrTitillHlutverkAthugasemd
1994ABC Afterschool SpecialsShannonÞáttur: Magical Make-Over
1996MoloneySamanthaÞáttur: Pilot
1996-1997Murder OneGwen10 þættir
sem Pauley P.
1997Early EditionTheresa LaParkoÞáttur: Mob Wife
sem Pauley P.
1996-1997FrasierRebecca2 þættir
sem Pauley P.
1998That´s LifeLisa6 þættir
1998The Naked TruthIlanaÞáttur: The Seer and the Sucker
1998The Drew Carey ShowDarcy4 þættir
1999Batman Beyond: The MovieLögreglumaðurSjónvarpsmynd
Talaði inn á
1999Batman BeyondLögreglumaðurÞáttur: Golem
Talaði inn á
1999JesseGwen3 þættir
1999Veronica´s ClosetNicoleÞáttur: Veronica´s Little Ruse
2001SmashCharleyónefndir þættir
1999-2001Cecilia Wisnarski19 þættir
2001Dead LastEricaÞáttur: Death Is in the Air
2001PhillyAngelaÞáttur: Light My Fire
2001Dawson´s CreekRachel Weir, Ph.D.2 þættir
2001-2002Special Unit 2Alice Cramer4 þættir
200224Tanya2 þættir
2002Red SkiesPatty PeirsonSjónvarpsmynd
2002HauntedNadineÞáttur: Fidelity
2003CSI: Crime Scene InvestigationCandeece / PinkÞáttur: Lady Heather´s Box
2003JAGAbby Sciuto2 þættir
2009NCIS: Los AngelesAbby Sciuto2 þættir
2010FCU: Fact Checkers UnitPauley8 þættir
2003-til dagsNCISAbby Sciuto186 þættir

Verðlaun og tilnefningar

Beverly Hills kvikmyndahátíðin

  • 2010: Verðlaun sem besta leikkona fyrir To Comfort You.

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar