Pírataflokkur
Pírataflokkur (stundum nefndur sjóræningjaflokkur) er heiti sem stjórnmálahreyfingar hafa tekið upp í nokkrum löndum. Pírataflokkar eiga það sameiginlegt að styðja borgaraleg réttindi, beint lýðræði, umbætur á höfundarréttar- og einkaleyfa lögum, frjálsa miðlun þekkingar (opið efni), friðhelgi einkalífs, gagnsæi og frelsi upplýsinga, ókeypis menntun, alþjóðlega heilsugæslu og skýr skil á milli ríkis og kirkju. Þeir aðhyllast nethlutleysi og alhliða, ótakmarkaðan aðgang allra að Internetinu sem nauðsynleg skilyrði þess.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6c/Piratpartiet.svg/220px-Piratpartiet.svg.png)
Upphafið
Fyrsti Pírataflokkurinn var hið sænska Piratpartiet, stofnað þann 1. janúar 2006 undir forystu Rickard Falkvinge. Nafnið kom frá Piratbyrån, sænskum samtökum sem voru á móti höfundarrétti en meðlimir Piratbyrån höfðu áður stofnað BitTorrent vefinn The Pirate Bay Geymt 23 desember 2012 í Wayback Machine. Piratbyrån var sænsk útgáfa af danska félaginu PiratGruppen, sem stofnað var sem andsvar við AntiPiratGruppen sem barðist fyrir hertum lögum um hugverkaþjófnað. Fjölmiðlar og kvikmynda- og tónlistariðnaðurinn tóku upp nafnið „pirat“ (sjóræningi) frá þessum fyrstu samtökum.
Íslensk samtök
Þann 24. nóvember 2012 var formlega stofnaður Pírataflokkur á Íslandi undir nafninu Píratar.[1][2][3] Á stofnfundinum voru samþykkt drög að lögum fyrir flokkinn og þar ákveðið að nafn hans skyldi vera Píratar (hjánefni Pirate Party Iceland).[4] Flokkurinn bauð fram í Alþingiskosningum 2013 undir listabókstafnum Þ[5] og hlaut þrjú þingsæti.
Tilvísanir
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar var „Pirate Party“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 26. júlí 2012.
Tengill
- Píratar í partýi Geymt 23 júlí 2012 í Wayback Machine, pistill eftir Svein Guðmarsson