Orkubú Vestfjarða

Orkubú Vestfjarða ohf. er sjálfstæð ríkisstofnun sem sett var á fót 26. ágúst 1977 til að virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum. Fyrirtækið rekur 7 vatnsaflsvirkjanir og dreifikerfi fyrir Vestfirði og sölukerfi, sem nær til landsins alls. Starfsmenn eru um 70 talsins. Aðalskrifstofa er á Ísafirði og svæðisskrifstofur á Hólmavík og Patreksfirði.

Saga

Árið 1976 samþykkti Alþingi lög um Orkubú Vestfjarða er heimiluðu Ríkissjóði Íslands og sveitarfélögum á Vestfjörðum að setja á stofn fyrirtæki í þeim tilgangi að að virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum þar sem hagkvæmt þótti. Orkubúi Vestfjarða var einnig ætlað að eiga og reka vatnsorkuver; jarðvarmavirkjanir; reka fjarvarmakyndistöðvar; dísilrafstöðvar til raforkuframleiðslu; og mannvirki til raforkudreifingar.

Fyrirtækið var stofnað þann 26. ágúst 1977 og var þá sameignarfélag sveitarfélaga á Vestfjörðum og ríkisins. Að Orkubú Vestfjarða stóðu upphaflega Ríkisstjórn Íslands, Árneshreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Broddaneshreppur, Bæjarhreppur, Hólmavíkurhreppur, Ísafjarðarbær, Kaldrananeshreppur, Kirkjubólshreppur, Reykhólahreppur, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð.

Fyrirtækið hóf formlega starfsemi þann 1. janúar 1978. Árið 2001 urðu breytingar á rekstrarformi þess þegar sameignarfélaginu var breytt í hlutafélag (Orkubú Vestfjarða hf.). Það þótti samræmast betur viðteknum venjum í efnahagslífinu. Jafnframt var ákveðið að ganga til viðræðna við sveitarfélögin á Vestfjörðum um kaup ríkisins á hlut þeirra í félaginu.[1]

Í framhaldi af lögum um opinber hlutafélög sem sett voru 2006 var nafninu breytt í Orkubú Vestfjarða ohf. Þótti rétt að setja inn í lögin um hlutafélög nokkur ákvæði varðandi þau hlutafélög sem hið opinbera á að öllu leyti.[2]

Orkubú Vestfjarða ohf. er í dag ríkisfyrirtæki í svokölluðum C-hluta ríkisreiknings og er það opinbert hlutafélag (ohf) að fullu í eigu ríkissjóðs.

Tilgangur

Tilgangur Orkubús Vestfjarða ohf. er að virkja vatnsafl og jarðhita á Vestfjörðum, eiga og reka orkuver og raforkustöðvar til raforkuframleiðslu, ásamt nauðsynlegum mannvirkjum til raforkuflutnings og raforkudreifingar. Þá er fyrirtækinu ætlað að eiga og reka jarðvarmavirkjanir og reka fjarvarmakyndistöðvar ásamt nauðsynlegu dreifikerfi.

Fyrirtækið á og rekur 7 vatnsaflsvirkjanir, sem framleiða u.þ.b. 90.000 MWh á ári, sem er um 60% af orkunotkun Vestfjarða. Flutningskerfið telur 1,036 km af rafmagnslínum og jarðstrengjum sem er viðhaldið af starfsmönnum þess.[3]

Virkjanir

Uppsett rafafl og raforkuframleiðsla í virkjunum Orkubús Vestfjarða ohf. var á árinu 2017:[4][5]

Orkubú Vestfjarða ohf.

Uppsett rafafl og raforkuframleiðsla í vatnsaflsvirkjunum árið 2016

Heiti virkjunarGangsetning [Ár]Uppsett rafafl [kW]Raforkuframleiðsla [MWh]
Mjólká195810.673.494
Þverárvirkjun19532.436.695
Fossárvirkjun20151.25.07
Tungudalsvirkjun20067004.969
Reiðhjallavirkjun19585141.872
Blævardalsárvirkjun19752881.618
Fossa- og Nónhornsvatn19371.161.504
Mýrarárvirkjun196560374
Orkubú Vestfjarða ohf.

Uppsett rafafl og raforkuframleiðsla í eldsneytisorkuverum árið 2017

Heiti virkjunarGangsetning [Ár]Uppsett rafafl [kW]Raforkuframleiðsla [MWh]
Flatey2006182127
Patreksfjörður19644.386
Bíldudalur19731.238
Þingeyri19801.5225
Hólmavík19901.419
Súðavík19861.415
Ísafjörður, Mjósund19764.310
Flateyri19754205
Reykhólar7504
Reykjanes6662
Suðureyri19757202
Drangsnes19754701


Orkubú Vestfjarða ohf.- Raforkuframleiðsla 2017
Raforkuframleiðsla - Vatnsafl [MWst]Raforkuframleiðsla - Jarðhiti [MWst]Raforkuframleiðsla - Vindorka [MWst]Raforkuframleiðsla - Eldsneyti [MWst]Samtals [MWst]
Orkubú Vestfjarða95.596-33494.117


Starfsmenn

Orkubús Vestfjarða ohf. er að fullu í eigu ríkissjóðs og fer fjármálaráðherra fer með eignarhlut ríkisins.[6]

Orkubússtjóri veitir fyrirtækinu forstöðu og er framkvæmdastjóri þess. Starfsmenn eru um 70 talsins á þremur starfssvæðum og þjónusta þeir dreifikerfi fyrir Vestfirði og sölukerfi, sem nær til landsins alls.[7]

Tilvísanir

Ítarefni