NCIS (1. þáttaröð)

Fyrsta þáttaröðin af NCIS var frumsýnd 23.september 2003 og sýndir voru 23 þættir.

Aðalleikarar

Aukaleikarar

Þættir

TitillHöfundurLeikstjóriSýnt í U.S.A.Þáttur nr.
Yankee WhiteDonald Bellisario og Don McGillDonald Bellisario23.09.20031 - 1
Flotaforingji deyr við dularfullar aðstæður um borð í forsetaflugvél Bandaríkjaforseta. NCIS liðið er sent til þess að rannsaka málið og er neytt til þess að sameina rannsóknina með alríkislögreglunni og leyniþjónustufulltrúanum Caitlin Kate Todd.
Hung Out to DryDon McGillAlan Levi30.09.20032 - 2
Sjóliði deyr í miðri fallhlífarstökksæfingu. Svo virðist sem einhver hafi fiktað við fallhlífina og breytist málið í morðrannsókn.
SeadogDonald Bellisario og John KelleyBradford May07.10.20033 - 3
Flotaforingji finnst myrtur í miðri eiturlyfjasölu; fjölmiðlarnir tengja hann strax við eiturlyfjaflutning og sönnungargögnin hlaðast up. Sem fyrrverandi sjóliði sjálfur, þá trúir Gibbs ekki að svona góður foringji sé svona óheiðarlegur og reynir hann af sínu öllum mætti að hreinsa nafn foringjans.
The ImmortalsDarcy MeyersAlan Levi14.10.20034 - 4
Lík drukknaðs sjóliða finnst á hafsbotni. Við fyrstu sýn virðist þetta vera sjálfsmorð en Todd neitar að trúa því að sjóliðinn hafi framið sjálfsmorð, sem eins og hún er úr kaþólskri fjölskyldu þar sem sjálfsmorð er dauðasynd.
The CurseDonald Bellisario, Don McGill og Jeff VlamingTerrence O´Hara28.10.20035 - 5
NCIS liðið er kallað til að rannsaka liðþjálfa í múmíulíki sem talinn er hafa stolið 1 milljón dollara, tíu árum áður.
High SeasLarry Moskowitz og Jeff VlamingDennis Smith04.11.20036 - 6
Fyrrverandi meðlimur í NCIS liði Gibbs biður um aðstoð þegar sjóliði þjáist af of stórum skammti af methamfetamíni, þrátt fyrir að hafa aldrei tekið inn eiturlyf. Þegar annar sjóliði lendir í því sama, þá þarf NCIS liðið að komast að því hvaðan eiturlyfin koma.
Sub RosaFrank Cardea og George SchenckMichael Zinberg18.11.20037 - 7
Uppleyst lík finnst í tunnu á Norfolk herstöðinni. Rannsóknin leiðir NCIS liðið að kafbáti og þurfa Gibbs og Todd fara um borð í leit sinni að morðingjanum.
Minimum SecurityDonald Bellisario og Philip DeGuereIan Toynton25.11.20038 - 8
NCIS liðið ferðast til Kúbu í leit sinni að morðingja, þegar þýðandi frá Guantanamo Bay finnst látinn með fullan maga af smarögðum (emeralds).
Marine DownJohn KelleyDennis Smith16.12.20039 - 9
Þegar látinn sjóliði hringir í konu sína í miðri jarðaför sinni þá þarf NCIS liðið að komast að því hvort um hrekk er að ræða eða að sjóliðinn er í alvörunni á lífi.
Left for DeadDonald Bellisario og Don McGillJames Whitmore Jr.09.01.200410 - 10
Kate tengist tilfinningalegum böndum við konu sem er minnislaus eftir að hafa fundist grafin í jörðu eftir morðtilraun. Það eina sem konan man er sprengja um borð í herskipi. NCIS liðið reynir að komast að því hver konan er og hvar sprengjan er staðsett.
Eye SpyFrank Cardea, Dana Coen og George SchenckAlan Levi13.01.200411 - 11
NCIS liðið rannsakar morð á sjóliðsforingja í Little Creek herstöðinni eftir ónafngreint símtal. McGee nær að rekja símtalið til Langley sem má halda að CSI sé að njósna um herstöðina.
My Other Left FootJack BernsteinJeff Woolnough03.02.200412 - 12
Fótur af sjóliða finnst í gámi, Gibbs og liðið lenda í vandræðum þegar þau komast að því að eigandi fótsins er nú þegar látinn.
One Shot, One KillGil GrantPeter Ellis10.02.200413 – 13
NCIS liðið eltist við leyniskyttu sem drepur sjóliða sem vinna á ráðningarskrifstofum fyrir sjóherinn.
The Good SamaritanJack BernsteinAlan Levi17.02.200414 - 14
Fógeti hefur samband við NCIS þegar liðsforingji finnst myrtur utanvegar, sem fylgir á eftir með morði á borgaralegum verkataka. NCIS liðið á erfitt með því að finna út hver sökudólgurinn í málinu er.
EnigmaJohn KelleyThomas J. Wright24.02.200415 - 15
Fornell og Gibbs rekast á þegar sjóliðsofursti flýr Írak með 2 milljónir dollara til bandaríkjanna undir nýju nafni. Fornell telur að hann hafi stolið peningunum á meðan Gibbs telur hann vera saklausann.
Bête NoireDonald BellisarioPeter Ellis02.03.200416 - 16
Ducky svarar neyðarkalli þegar ísraelska sendiráðið sendir konungslegan sjóforingja til krufningar, aðeins til að finna byssumann inn í líkpokanum. Tekur hann Ducky og Gerald og seinnar meir Todd sem gísla í krufningarherberginu.
The Truth is Out ThereJack BernsteinDennis Smith16.03.200417 - 17
Undirforingi finnst látinn eftir að hafa fallið í gegnum loft í miðju partýi. Frumrannsókn leiðir í ljós að hann var myrtur á nálægu bílastæði.
UnSEALedThomas MoranPeter Ellis06.04.200418 - 18
SEAL sérsveitarmaður sem var dæmdur fyrir tvöfalt morð flýr Leavenworth fangelsið. Segist hann vera saklaus og ætlar að gera allt sem hann getur til þess að hreinsa nafn sitt.
Dead Man TalkingFrank Cardea og George SchenckDennis Smith27.04.200419 - 19
NCIS fulltrúinn Chris Pacci finnst myrtur við rannsókn á gömlu máli, sem ýtir hinn sektarkennda Gibbs út í það að rannsaka hver drap Pacci. Málið leiðir liðið að gömlu ráni og konu sem tengist þjófinum.
MissingJohn KelleyJeff Woolnough04.05.200420 - 20
Dularfullt hvarf sjóliða leiðir NCIS liðið að fleirum sjóliðium sem hafa einnig horfið. Gibbs grunar yfirmann hópsins (því hann er sá eini sem enn er á lífi) sem morðingjann en á samatíma þá hverfur Tony.
Split DesicionBob GookinTerrence O´Hara11.05.200421 - 21
Ducky kynnist nýja aðstoðarmanni sínum Jimmy Palmer. Gibbs og NCIS liðið rannsakar sjóliða sem hefur verið myrtur með stolnu vopni. Tony fer undir sem kaupandi en rekst á ATF fulltrúann Stone. Vinnur liðið með ATF fulltrúanum til þess að finna vopnasalann og morðingjann.
A Weak LinkJack BernsteinAlan Levi19.05.200422 - 22
SEAL sérsveitarmaður fellur til dauða við venjulega æfingu nokkrum dögum áður en hann á að fara í leynilega björgunaraðgerð. Fyrst er talið að um slys sé að ræða og lélega búnað, þangað til Abby finnur að fiktað hafði verið í búnaði mannsins. NCIS liðið er undir þrýstingi frá CIA og hefur aðeins 38 tíma til þess að leysa málið.
ReveilleDonald BellisarioThomas J. Wright25.05.200423 - 23
Þráhyggja Gibbs til þess að finna byssumanni sem hélt Ducky og Todd gíslum verður meiri. McGee reynir að finna leið til þess að finna hann, á meðan þá borða Todd og Tony hádegismat með Ducky. Þegar Tony eltir uppi draumakonu sína þá er Todd rænt af byssumanninum sem er Hamas hryðjuverkamaður.

Heimild