Larry Bird

Larry Joe Bird (fæddur 7. desember, 1956) er bandarískur fyrrum körfuknattleiksmaður sem spilaði fyrir Boston Celtics í NBA-deildinni. Bird spilaði 13 tímabil í deildinni og var valinn 12 sinnum í stjörnuliðið, vann þrisvar besti leikmaður, MVP, í deildinni og tvisvar MVP í úrslitum. Hann vann deildina þrisvar á 9. áratugnum þegar mikill rígur var milli Los Angeles Lakers og Boston Celtics. Bird var fjölhæfur leikmaður, góð þriggja stiga skytta og varnarmaður.

Larry Bird
Upplýsingar
Fullt nafnLarry Joe Bird
Fæðingardagur7. desember 1956
Fæðingarstaður   West Baden, Indiana, Bandaríkin
Hæð206 cm.
Þyngd100 kg.
LeikstaðaLítill framherji, kraftframherji
Háskólaferill
1976-1979Indiana State
Meistaraflokksferill1
ÁrLið
1979-1992Boston Celtics
Landsliðsferill
ÁrLiðLeikir
1992Bandaríkin

1 Meistaraflokksferill.

Bird spilaði með draumaliðinu á Ólympíuleikunum 1992 þegar bandaríska landsliðið sigraði. Bakmeiðsli settu strik á ferilinn hans og urðu til þess að hann hætti fyrr.

Bird þjálfaði Indiana Pacers frá 1997 til 2000. Hann vann fyrir Pacers til 2012.