Kildinsamíska (kildinsamíska: самь кӣллsam' kíl) er finnsk-úgrískt og samískttungumál sem er talað í Rússlandi í Kólaskaga sem liggur í norðvestur Rússlandi. [1] Kildinsamíska er aðallega töluð í borginni Lovozero, sem er höfuðborg rússneska Lapplands. Í Lovozero kallar fólkið kildinsamísku einfaldlega „samísku“ eða „samíska tungumálið“. Um þessar mundir eiga aðeins 753 manns kildinsamísku að móðurmáli, en fleiri kunna tungumálið sem annað tungumál (og móðurmálið þá rússneska).
Kildinsamíska er eitt af þremum austursamískum tungumálum sem er skrifað í kýrillíska stafrófinu. Hún hefur líka bókstafi sem eru bara notaðir í kildinsamísku, til dæmis bókstafurinn „Ҍ ҍ“