1 Leikir með meistaraflokkum og mörk talið í aðaldeild liðsins og síðast uppfært mars. 2021. 2 Landsliðsleikir og mörk uppfærð 2021.
Kepa Arrizabalaga Revuelta (f. 1994) er spænskur markmaður sem spilar með Real Madrid á láni frá Chelsea F.C. og spænska karlalandsliðið í knattspyrnu. Hann gekk til liðs við Chelsea í ágúst 2018 og skrifaði undir sjö ára samning við félagið sem greiddi fyrir hann 80 milljón punda sem gerði hann dýrasta markmann allra tíma.
Kepa spilaði áður aðallega með Athletic Bilbao þar sem að hann var frá árinu 2004. Þaðan var hann fenginn til þess að fylla í skarð Thibaut Courtois sem fór frá Chelsea til Real Madrid.
Í september 2020 missti Kepa sæti sitt sem aðalmarkmaður hjá lundúnarfélaginu við komu Senegalans Edouard Mendy en Kepa hafði verið gagnrýndur vegna slæmrar frammistöðu.
Kepa var lánaður til Real Madrid þegar Courtois meiddist sumarið 2023