Jóhanna Gunnlaugsdóttir

Jóhanna Gunnlaugsdóttir er prófessor í upplýsinga- og skjalastjórn og rafrænum samskiptum við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

Jóhanna Gunnlaugsdóttir
StörfPrófessor í upplýsinga- og skjalastjórn og rafrænum samskiptum við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands

Ferill

Jóhanna lauk BA-prófi í bókasafnsfræði og sagnafræði frá Háskóla Íslands 1985, MSc (Econ) í stjórnun og rekstri fyrirtækja með áherslu á upplýsingastofnanir og upplýsingakerfi innan fyrirtækja frá háskólanum í Wales 1998 og doktorsprófi í upplýsingafræði frá Háskólanum í Tampere, Finnlandi 2006. Hún er fyrsti Íslendingurinn til þess að hljóta doktorsgráðu í upplýsinga- og skjalastjórn.[1][2]

Jóhanna hefur unnið við ýmis störf eins og kennslu við Garðaskóla og hjá Bókasafni Garðabæjar. Þá stofnaði hún, árið 1986, ásamt öðrum og var ráðgjafi hjá Gangskör sf. sem er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði upplýsinga- og skjalamála.[3] Hjá Gangskör sf. vann hún við upplýsinga- skjala- og bókasafnsmál hjá um 100 fyrirtækjum og stofnunum um 25 ára skeið og ritaði og vann fyrir þau meðal annars greinargerðir, skýrslur, skrár og handbækur um skjalamál og hannaði og innleiddi hjá þeim hin mismunandi skjalaflokkunarkerfi og rafræn skjalastjórnarkerfi.[4][3] Frá 1989 hefur hún haldið ýmis námskeið og fyrirlestra um skjala- og upplýsingamál fyrir Stjórnunarfélag Íslands, Endurmenntun Háskóla Íslands, Félag um skjalastjórn, Félag um þekkingarstjórnun, Háskóla Íslands, Fjármálaráðuneytið, Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík og fleiri aðila.[3]

Frá 1997-1999 var Jóhanna stundakennari í upplýsingafræði (þá bókasafns- og upplýsingafræði) við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hún varð lektor 1999, dósent 2007 og prófessor frá 2008. Frá 2001 hefur hún reglulega verið formaður námsbrautar og hún hefur verið gestakennari við ýmsa háskóla hérlendis og erlendis.[3] Hún hefur leiðbeint fjölda meistara- og doktorsnema[4] og verið í ritstjórn innlendra og erlendra tímarita.[5]

Ýmis störf og verkefni

Jóhanna starfar í og hefur verið í stjórn ýmissa félaga meðal annars um bókasafns- og upplýsingamál. Hún var einn af stofnendum Félags um skjalastjórn árið 1988 og sat í stjórn þess 1988-1992[6] og einn af stofnendum Félags um þekkingarstjórnun 2005.[7] Hún var í stjórn Skólavörðunnar 1986-1989 og í stjórn Þjónustumiðstöðvar bókasafna 1988-1991. Þá var hún fulltrúi á háskólafundi HÍ 2001-2008, í kennslumálanefnd Félagsvísindadeildar HÍ 2007-2008, í stjórn Félagsvísindastofnunnar HÍ og í jafnréttisnefnd HÍ 2009-2010, í vísindanefnd Félags- og mannvísindadeildar HÍ 2009-2013 og formaður 2011-2013. Enn fremur hefur hún starfað í nefndum og starfshópum á vegum háskólaráðs/rektors svo sem markaðs- og samskiptanefnd 2002-2007, starfshópi um endurskoðun málstefnu HÍ 2015-2016, starfshópi um mótun stefnu HÍ um opinn aðgang 2011-2012, málnefnd 2016-2018, gæðanefnd frá 2016 og stýrihópi HÍ um máltækni frá 2018. Hún hefur starfað í samráðshópi og námsnefnd um fagháskólanám í heilbrigðisgaganfræði við Læknadeild HÍ frá 2018. Frá 2014 hefur hún setið í stjórnarnefnd Þjóðskjalasafns Íslands og frá 2017 verið formaður tækninefndar hjá Staðlaráði Íslands um þýðingu ISO 15490-1, staðli um upplýsingar og skjalastjórn.[3]

Rannsóknir

Rannsóknir, kennsla og fræðaskrif Jóhönnu eru á sviðum upplýsinga- og skjalastjórnar, þekkingarstjórnunar, gæðastjórnunar og flokkunaraðferða og -kenninga.[8][6] Doktorsrannsókn hennar „The implementation and use of ERMS. A study in Icelandic organizations” sneri að innleiðingu og notkun á rafrænum skjalastjórnarkerfum í skipulagsheildum á Íslandi. Aðrar rannsóknir Jóhönnu hafa til að mynda beinst að því að kanna persónulega samfélagsmiðlanotkun starfsfólk á vinnutíma,[9][10] umfjöllun um alþjóðlegan staðal um skjalastjórn[11][12] og viðhorf almennings til upplýsingagjafar stjórnvalda, það er hvort almenningur teldi að stjórnvöld leyndu mikilvægum upplýsingum sem vörðuðu almannahag og opinber útgjöld.[13][14][15][16]

Hún hefur hlotið ýmsa styrki svo sem úr Rannsóknarsjóði HÍ, hún var þátttakandi í Valds- og lýðræðisrannsókn Félagsvísindasviðs HÍ, styrkt af Aldarafmælissjóði HÍ 2013-2017 og frá 2017 hefur hún verið í þverfræðilegu samstarfsverkefni innan HÍ, fötlun fyrir tíma fötlunar (Disability before Disability)[17] sem hlaut öndvegisstyrk frá Rannís.[18]

Viðurkenningar

Jóhanna var sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu af forseta Íslands á nýársdag 2020 fyrir kennslu og rannsóknir á sviði upplýsingafræði og skjalastjórnunar.[19] Árið 2016 hlaut Jóhanna verðlaunin „Emerald Literati Network Awards 2016 for Excellence: Outstanding Paper from the Previous Year“ á sviði upplýsingafræði fyrir greinina „Government secrecy: Public attitudes toward information provided by the authorities“ sem birtist í tímaritinu Records Management Journal[20][21] og árið 2019, ásamt Rögnu Kemp Haraldsdóttur, sams konar verðlaun fyrir greinina „The missing link in information and records management: Personal knowledge registration” í Records Management Journal.[22] Þá var hún gerð heiðursfélagi Félags um skjalastjórn á 20 ára afmælisfagnaði félagsins 2008[23] og heiðursfélagi Upplýsingar – félags bókasafns- og upplýsingafræða 2020.[24]

Einkalíf

Foreldrar Jóhönnu voru hjónin Gunnlaugur Jónsson (1928-2013) náttúrufræðingur og kerfisfræðingur og Bergþóra Jensen (1927-2013) leikskólastarfsmaður. Eiginmaður hennar er Árni Árnason rekstrarhagfræðingur og framkvæmdastjóri og eiga þau tvö börn.[25]

Helstu ritverk

Greinar

Bókarkaflar

Heimildir