Hestakastanía

Hestakastanía eða hrossakastanía (fræðiheiti Aesculus hippocastanum) er stórt lauftré af hrossakastaníuætt. Það er upprunið í fjalllendi á Balkanskaga. Það er vinsælt götutré á Vesturlöndum.

Hestakastanía
Hestakastanía
Hestakastanía
Vísindaleg flokkun
Ríki:Jurtaríki (Plantae)
Fylking:Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur:Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur:Sápuberjabálkur (Sapindales)
Ætt:Hrossakastaníuætt (Sapindaceae)
Ættkvísl:Aesculus
Tegund:
A. hippocastanum

Tvínefni
Aesculus hippocastanum
L.

Lýsing

Kjörlendi hestakastaníu er í sól, í skjóli og hlýjum stað þar sem tréð hefur nóg vaxtarrými. Tréð verður allt að 25 m hátt og allt að 25 m í þvermál í heimkynnum sínum. Krónan útbreidd og hvelfd. Smálauf eru saman 5 - 7 talsins og allt að 25 sm löng. Aldin eru hnöttótt og allt 6 sm í þvermál.[1]

Á Íslandi

Hestakastaníu má finna meðal annars í trjásöfnunum í Hellisgerði, Lystigarði Akureyrar og Grasagarði Reykjavíkur. Einnig eru til stálpuð eintök í eldri hluta Reykjavíkur og í Hveragerði. Hún hefur náð um 10 metra hæð.Það telst til tíðinda þegar hrossakastanía blómstrar á Íslandi enda þarf hún til þess hlý sumur. [2]

Tilvísanir

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.