Höfn í Hornafirði
64°16.02′N 15°11.90′V / 64.26700°N 15.19833°V
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/46/View_of_H%C3%B6fn_%28R%C3%A1narsl%C3%B3%C3%B0_and_Sandbakkavegur%29.jpg/220px-View_of_H%C3%B6fn_%28R%C3%A1narsl%C3%B3%C3%B0_and_Sandbakkavegur%29.jpg)
Höfn í Hornafirði er þéttbýlisstaður við Hornafjörð á Suðausturlandi og er aðal þéttbýliskjarni Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þar bjuggu 1.710 árið 2019.
Búseta hófst á Höfn árið 1897 þegar kaupmaðurinn Ottó Tulinius fluttist þangað, ásamt fjölskyldu sinni, frá Papósi. Smám saman myndaðist þar þéttbýli í kringum verslun og útgerð og varð bærinn að sérstökum hreppi, Hafnarhreppi, í ársbyrjun 1946, en hafði fram að því heyrt undir Nesjahrepp. Hafnarhreppur varð bæjarfélag í árslok 1988 og hét eftir það einfaldlega Höfn, án nokkurs viðskeytis.[1]Hinn 12. júlí 1994 sameinuðust Höfn og Nesjahreppur á ný, ásamt Mýrahreppi, undir nafninu Hornafjarðarbær.
Þann 6. júní 1998 sameinuðust svo Hornafjarðarbær, Bæjarhreppur, Borgarhafnarhreppur og Hofshreppur undir nafninu Sveitarfélagið Hornafjörður.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/73/2008-05-24_01_View_along_the_Coast_from_H%C3%B6fn.jpg/800px-2008-05-24_01_View_along_the_Coast_from_H%C3%B6fn.jpg)
Eitt og annað
- Mönnuð veðurathugunarstöð Veðurstofunnar er á Höfn og hefur hún verið starfrækt síðan 2006. Áður voru veðurathuganir gerðar í Akurnesi, býli um 8 km norðar.
- Í eina tíð gekk Höfn í Hornafirði stundum undir nafninu Konsó. [2]
- Í Grikklandsárinu eftir Halldór Laxness, segir á einum stað: „Verslun kom á Hornafjörð um aldamótin þegar Túliníusbræður af Eskifirði, búsettir í Kaupmannahöfn, beindu skipum sínum gegnum smuguna í eiðið, inní lygnan ósinn, og reistu þar á tánganum verslunarhús pakkhús og kaupmannsbústað. En verslunarkóngsríkið á Höfn varð víst ekki nema tvítugt. Eftir Ottó Túliníus, sem sneri heim aftur, kom Þórhallur Daníelsson til skjalanna og réði ríkjum [...]. Konúngsríki hans hafði ekki staðið nema rúman áratug þegar nýstofnað Kaupfélag skaftfellínga dró lið saman og velti kaupmanninum úr sessi. Þórhallur tók sér þá fyrir hendur útgerð og fiskverslun.“
Tilvísanir
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d4/Noto_Emoji_KitKat_1f30e.svg/30px-Noto_Emoji_KitKat_1f30e.svg.png)