Gulstika

Gulstika (fræðiheiti: Parmeliopsis ambigua) er tegund fléttna af litskófarætt. Hún finnst á Íslandi og líkist mjög grástiku í útliti en hefur gulleitan litblæ sem grástika hefur ekki.[2]

Gulstika
Gulstika á berki í Alberta í Kanada.
Gulstika á berki í Alberta í Kanada.
Ástand stofns

Við hættumörk Náttúrufræðistofnun Íslands[1]
Vísindaleg flokkun
Ríki:Sveppir (Fungi)
Fylking:Asksveppir (Ascomycota)
Flokkur:Lecanoromycetes
Ættbálkur:Lecanorales
Ætt:Litskófarætt (Parmeliaceae)
Ættkvísl:Parmeliopsis
Tegund:
Gulstika (P. ambigua)

Tvínefni
Parmeliopsis ambigua

Útbreiðsla og búsvæði

Gulstika vex á trjágreinum og bolum, aðallega á birki. Á Íslandi finnst hún aðeins neðan 200 metra og þekkist bara á Austulandi frá FljótsdalshéraðiHornafirði en einnig við Ísafjarðardjúp.[2]

Verndun og stofnstærð

Gulstika er á válista Náttúrufræðistofnunar Íslands þar sem hún er flokkuð sem tegund í nokkurri hættu (LR).[1] Gulstika hefur ekki verið metin af samtökunum IUCN.

Efnafræði

Gulstika ber gulleitan blæ vegna úsninsýru í þalinu. Hún inniheldur einnig divaricatinsýru. Þalsvörun gulstiku er K-, C-, KC+ gul, P-.[2]

Myndir

Tilvísanir

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.