Glimmer
Glimmer er steind úr vatnsblönduðu kalíum-ál-sílikati.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b9/Mica-from-alstead.jpg/200px-Mica-from-alstead.jpg)
Lýsing
Hefur þunna plötulaga kristala. Það er dökkbrúnt eða svart á litinn, með skelplötugljáa og myndar stökkar flögur.
- Efnasamsetning: K(Mg,Fe)3(Al,Fe)Si3O10(OH,F)2
- Harka: 2½-3
- Kristalgerð: Mónóklín
- Eðlisþyngd: 2,7-3,3
- Kleyfni: góð
Útbreiðsla
Glimmer finnst her á landi aðallega í innskotum og hefur fallið út úr kvikuvessum á lokastigi storknunar. Algengustu afbrigðin eru dökkt glimmer (bíótít) og ljóst glimmer (múskóvít) sem eru báðar algengar í myndbreyttu bergi, aðallega gneisi og gljáflögubergi, t.d. graníti.
Notkun
Glimmer er gott einangrunarefni og hefur verið notað í raftæki, rúður og málningu. Stærstu glimmernámur heims eru á Indlandi.
Heimild
- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2
- Þorleifur Einarsson (1994) Myndun og mótun lands: Jarðfræði. ISBN 9979-3-0263-1
🔥 Top keywords: ForsíðaXXX RottweilerhundarKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitBrúðkaupsafmæliBaskarBaskalandSniðaspjall:Lið í 1. deild karla í knattspyrnuFiann PaulListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaListi yfir íslensk mannanöfnListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaVargsnigillHundadagarÓmar RagnarssonHúsafellssteininnBaskneskaListi yfir íslensk póstnúmerÓlympíuleikvangurinn í BerlínÓðinnSeinni heimsstyrjöldinWikipediaÍslandSpánnEvrópukeppni karla í knattspyrnuBaltasar KormákurListasafn Einars JónssonarKnattspyrnaWikipedia:Um verkefniðEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024MynsturGylfi Þór SigurðssonReykjavíkEnska karlalandsliðið í knattspyrnuDonald TrumpFilippus 6. SpánarkonungurÞjóðvegur 1Evrópukeppnin í knattspyrnu 2021Wikipedia:Almennur fyrirvari