Forsetakjör á Íslandi 2020
- Síða
- Spjall
Forsetakjör á Íslandi 2020 fór fram 27. júní 2020. Guðni Th. Jóhannesson, sitjandi forseti Íslands, tilkynnti í nýársávarpi sínu 1. janúar 2020 að hann myndi sækjast eftir endurkjöri.[1]
Tveir frambjóðendur, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðmundur Franklín Jónsson hótelstjóri og fyrrverandi verðbréfasali skiluðu meðmælalistum í öllum kjördæmum.[2]
Guðni var sigurvegari í forsetakjörinu og hlaut hann 89,4% greiddra atvæða. Kjörsókn var tæp 66,9%.
Sú nýbreytni var tekin upp við framkvæmd forsetakjörs að söfnun undirskrifta frá meðmælendum mátti fara fram með rafrænum hætti vegna heimsfaraldurs COVID-19.[3]
Þann 26. júní, degi fyrir kosningu, var tilkynnt að kjósendur í sóttkví vegna COVID19 gætu ekki kosið[4]. Þeirri ákvörðun var mótmælt víða[5] og úr varð að fólk í sóttkví gat kosið í gegnum bílrúðu á bílaplani hjá embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.[6].
Á kjördag komu fram ábendingar um að betur hefði mátt standa að framsetningu kjörseðils og töldu sumir að kassar til að setja kross, framan við nöfn frambjóðenda hefðu auðveldað nýjum kjósendum að setja merki á réttan stað. Óvíst er hversu mikil áhrif þessi framsetning hafði á fjölda ógildra atkvæða.
Dags. | Könnun | GThJ | GFJ | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|
03-06-2020 | Þjóðarpúls Gallup[10] | 90,4% | 9,6% | Úrtak: 1108 Svarhlutfall: 55% |
11-06-2020 | Maskína/Stöð 2[11] | 92,4% | 7,6% | |
20-06-2020 | Zenter/Fréttablaðið[12] | 92,1% | 7,9% | Úrtak: 2500 Svarhlutfall: 50,5% |
24-06-2020 | Þjóðarpúls Gallup[13] | 93,5% | 6,5% | Úrtak: 1589 Svarhlutfall: 51,7% |
Í undanfara kosninganna stóðu ýmsir fjölmiðlar fyrir netkönnunum með sjálfvöldu úrtaki en þær eru ekki áreiðanlegar þar sem ekki er unnt að yfirfæra niðurstöður á alla kjósendur. Stuðningur við Guðmund Franklín var gjarnan mun meiri í netkönnunum með sjálfvöldu úrtaki en þeim skoðanakönnunum sem unnar voru með viðurkenndum vísindalegum aðferðum. Sem dæmi tilgreindu yfir 75% þátttakenda í slíkri könnun á Útvarpi Sögu að þeir hygðust kjósa Guðmund Franklín Jónsson[14].
![]() | ||
---|---|---|
Frambjóðandi | Atkvæði | % |
Guðni Th. Jóhannesson | 150.913 | 92,18 |
Guðmundur Franklín Jónsson | 12.797 | 7,82 |
Samtals | 163.710 | 100,00 |
Gild atkvæði | 163.710 | 96,97 |
Ógild atkvæði | 1.068 | 0,63 |
Auð atkvæði | 4.043 | 2,39 |
Heildarfjöldi atkvæða | 168.821 | 100,00 |
Kjósendur á kjörskrá | 252.152 | 66,95 |
Heimild: Hagstofa Íslands |
Fyrir: 2016 | Forsetakjör á Íslandi | Eftir: 2024 |