Edda Björgvinsdóttir

Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir (f. 13. september 1952) er íslensk leikkona og handritshöfundur. Hún hefur leikið í ýmsum kvikmyndum og þáttum en einna þekktust er hún fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Stellu í orlofi.

Ævi

Edda fæddist í Reykjavík og foreldrar hennar eru Margrét Kristinsdóttir sjúkraliði (1930-2012) og Björgvin Friðgeir Magnússon (f. 1923) skólastjóri. Edda var gift Gísla Rúnar Jónssyni leikara og eignuðust þau tvo syni, Björgvin Franz Gíslason og Róbert Ólíver Gíslason sem báðir eru leikarar. Edda á einnig tvær dætur af fyrra sambandi, Evu Dögg og Margréti Ýrr Sigurgeirsdætur.[1]

Edda lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1972 og útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1978.[1] Hún lauk MA námi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2013 og stundaði diplómanám í jákvæðri sálfræði í Háskóla Íslands 2014-2015.[2] Hún hefur starfað sem leikari hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar, Alþýðuleikhúsinu, Hinu leikhúsinu, Gríniðjunni auk fjölda leikhópa. Hún hefur einnig leikið í fjölda sjónvarpsþátta, kvikmynda og í fjölmörgum áramótaskaupum og starfað sem fararstjóri og fyrirlesari,[3] setið í umferðarnefnd Reykjavíkur fyrir Kvennalistann frá 1982-1983, verið stundakennari við Háskólann á Bifröst og er meðhöfundur fjölda skemmtiþátta fyrir útvarp og sjónvarp.[1]

Viðurkenningar

Árið 2018 hlaut hún Edduverðlaunin fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Undir trénu, var borgarlistamaður Reykjavíkur sama ár og hlaut þá einnig riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu.

Ferill í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum

ÁrKvikmynd/þátturHlutverkAthugasemdir og verðlaun
1978Áramótaskaup
1981Áramótaskaup
1982Áramótaskaup
1983Áramótaskaup
1984Hrafninn flýgur
1984Gullsandur
1984Gullna hliðið (sjónvarpsmynd)
1985Fastir liðir eins og venjulega (sjónvarpsþættir)
1986Ást í kjörbúð (sjónvarpsmynd)
1986Stella í orlofiStella Löve
1986Heilsubælið (sjónvarpsþættir)
1989Áramótaskaup
1990Áramótaskaup
1991Hvítí víkingurinnBergþóra
1992Karlakórinn Hekla
1992Áramótaskaup
1993Hin helgu vé
1993Áramótaskaup
1994Áramótaskaup
1997Perlur og svínMarta
2000Áramótaskaup
2001VilliljósHanna
2002Stella í framboðiStella Löve
2005Áramótaskaup
2007Áramótaskaup
2013Þetta reddast
2014Áramótaskaup
2017Undir trénuIngaEdduverðlaun
2018Lof mér að fallaGeðlæknir
2018Venjulegt fólk (sjónvarpsþættir)
2020Amma Hófí

Tilvísanir