Dögun (stjórnmálasamtök)

Dögun - stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði voru Íslensk stjórnmálasamtök, stofnuð 18. mars 2012. Félaginu var formlega slitið 7. nóvember 2021 eftir að engin virkni hafði verið í samtökunum síðan 2017.[1] Flokkurinn bauð fram í alþingiskosningum 2013, 2016 og 2017 og einnig í sveitarstjórnarkosningunum 2014.

Merki flokksins.

Formenn

FormaðurKjörinnHætti
Andrea Ólafsdóttir20122015
Helga Þórðardóttir20152017
Pálmey Gísladóttir20172018
Helga Þórðardóttir20182021

Alþingiskosningar 2013

Dögun bauð fram í alþingiskosningum 2013. Dögun var sameining flokkanna Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn og auk þess voru fulltrúar úr stjórnlagaráði í flokknum. Meðal þeirra sem gáfu kost á sér voru Margrét Tryggvadóttir þingmaður, Ragnar Þór Ingólfsson stjórnarmaður í VR og Gísli Tryggvason úr stjórnlagaráði.[2][3] Andrea Ólafsdóttir var formaður flokksins.

Dögun hlaut 3,1% fylgi í kosningunum 2013 og náði ekki manni á þing.

Sveitarstjórnarkosningar 2014

Dögun bauð fram í sveitarstjórnarkosningunum 2014 í Reykjavík og ásamt umbótasinnum í Kópavogi. Þorleifur Gunnlaugsson leiddi listann í Reykjavík en hann hafði áður verið í Vinstrihreyfingunni - grænt framboð. Árni Þór Þorgeirsson, frumkvöðull leiddi listann í Kópavogi.

Dögun fékk 1,4% í Reykjavík og 0,8% í Kópavogi og hlaut engan mann inn í sveitarstjórn.

Alþingiskosningar 2016

Dögun bauð fram í öllum kjördæmum í alþingiskosningunum árið 2016[4] Helga Þórðardóttir, kennari á Barnaspítala Hringsins var kjörin formaður Dögunar árið 2015. Hún leiddi á listann í Reykjavík suður, Hólmsteinn A. Brekkan framkvæmdastjóri samtaka leigjenda, leiddi listann í Reykjavík norður, Ragnar Þór Ingólfsson stjórnarmaður í VR og stjórnarmaður í hagsmunasamtökum heimilanna leiddi listann í Suðvesturkjördæmi.[5]

Dögun hlaut 1,7% í kosningunum og tapaði 1,4% fylgi frá kosningunum árið 2013.

Alþingiskosningar 2017

Dögun bauð fram í einu kjördæmi, Suðurkjördæmi í alþingiskosningunum 2017. Helga Þórðardóttir leiddi listann, þrátt fyrir að Pálmey Gísladóttir væri orðin formaður. Tilkynnt var um framboð 1. október 2017.

Flokkurinn hlaut 0,1% atkvæða eða 101 atkvæði í kosningunum og misstu því 1,6% frá kosningunum árið 2016.

Sveitarstjórnarkosningar 2018

Árið 2018 hætti Pálmey sem formaður og Helga Þórðardóttir varð aftur að formanni. Í febrúar 2018 tilkynnti flokkurinn að hann myndi ekki bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 2018.[6]

Aðalfundur 2021

Á aðalfundi Dögunar sem var haldin 7. nóvember 2021 var tilkynnt að Dögun væri formlega slitið, ástæðan væri annars vegar vegna þess að engin virkni hafði verið í flokknum síðan árið 2018 og að það væru fleiri flokkar sem hafa verið að berjast fyrir sama málstað væru að ganga betur svo ekki væri þörf lengur á flokknum, sem dæmi um flokka voru Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkurinn nefndir í því samhengi. Mikið af flokksfólki Dögunar gekk í Flokk fólksins eftir slitin.

Tilvísanir

Tenglar