Charles Robert Watts (fæddur 2. júní1941 – látinn 24. ágúst2021) var enskur trommari, best þekktur sem meðlimur The Rolling Stones þar sem hann trommaði í 58 ár; frá 1963 til dauðadags árið 2021. Hann var undir áhrifum frá djassi og túraði sjálfur með sinni hljómsveit the Charlie Watts Quintet eða the Charlie Watts Tentet.
Watts var einnig menntaður sem grafískur hönnuður og hannaði m.a. myndasögur í albúmum Stones. Hann lifði ekki eins villtu lífi og félagar hans í hljómsveitinni en átti um tíma í vandamálum með heróín og áfengisneyslu.