Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar er viðurkenning sem Reykjavíkurborg veitir í minningu Tómasar Guðmundssonar skálds. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1994. Framan af voru þau veitt annað hvert ár fyrir skáldverk en árið 2005 var reglunum breytt og eru þau nú veitt árlega fyrir óprentað handrit að ljóðabók.

Verðlaunahafar frá upphafi

  • 1994 - Helgi Ingólfsson, Letrað í vindinn
  • 1997 - Ebba Gunnarsdóttir, Sumar sögur
  • 1998 - Bjarni Bjarnason, Borgin bak við orðin
  • 2000 - Hjörtur Björgvin Marteinsson, AM 00
  • 2002 - Sigurbjörg Þrastardóttir, Sólar Saga
  • 2004 - Auður Ava Ólafsdóttir, Rigning í nóvember
  • 2006 - Ingunn Snædal, Guðlausir menn - Hugleiðingar um jökulvatn og ást
  • 2007 - Ari Jóhannesson, Öskudagar
  • 2008 - Magnús Sigurðsson, Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu
  • 2009 - Eyþór Árnason, Hundgá úr annarri sveit
  • 2010 - Þórdís Gísladóttir, Leyndarmál annarra.
  • 2011 - Sindri Freysson, Í klóm dalalæðunnar
  • 2012 - Dagur Hjartarson, Þar sem vindarnir hvílast - og fleiri einlæg ljóð
  • 2013 - Bjarki Karlsson, Árleysi alda
  • 2014 - Hjörtur Marteinsson, Alzheimer-tilbrigðin
  • 2015 - Ragnar Helgi Ólafsson, Til hughreystingar þeim sem finna sig ekki í samtíma sínum
  • 2016 - Eyrún Ósk Jónsdóttir, Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa
  • 2017 - Jónas Reynir Gunnarsson, Stór olíuskip
  • 2018 - Haukur Ingvarssonar, Vistarverur
  • 2019 - Harpa Rún Kristjánsdóttir, Edda
  • 2020 - Ragnheiður Lárusdóttir, 1900 og eitthvað
  • 2021 - Jón Hjartarson, Troðningar
  • 2022 - Natasha S, Máltaka á stríðstímum

Heimild

  • „Vefur Reykjavíkurborgar - Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar“.