Alanis Morissette

Kandadísk söngkona

Alanis Nadine Morissette (f. 1. júní 1974) er kandadísk söngkona/lagasmiður, upptökustjóri og leikkona. Hún hefur unnið 16 Juno-verðlaun og sjö Grammy-verðlaun. Morissette hóf feril sinn í Kanada og hljóðritaði þar tvær danspopphljómplötur á táningsaldri, Alanis og Now is the Time með útgáfufyrirtækinu MCA Records Canada. Fyrsta hljómplatan hennar sem gefin var út um allan heim, Jagged Little Pill, er ennþá mest selda fyrsta hljómplata kvenkynssöngvara í Bandaríkjunum, og líka heimsins alls. Jagged Little Pill hefur selst í yfir 30 milljónum eintökum. Önnur hljómplatan hennar Supposed Former Infatuation Junkie var gefin út árið 1998 og seldist líka vel. Eftir útgáfu annarrar hljómplötu byrjaði Morissette að hafa yfirumsjón með upptöku hljómplata sinna, það er: Under Rug Swept, So-Called Chaos og Flavors of Entanglement. Yfir 40 milljón eintök hljómplatna Morrissette hafa selst á heimsvísu.

Alanis Morissette
Morissette árið 2014
Fædd
Alanis Nadine Morissette

1. júní 1974 (1974-06-01) (50 ára)
Ríkisfang
  • Kanada
  • Bandaríkin
Störf
  • Söngvari
  • lagahöfundur
  • leikari
Ár virk1986–núverandi
MakiMario Treadway (g. 2010)
Börn3
Tónlistarferill
Stefnur
Hljóðfæri
  • Rödd
  • gítar
  • munnharpa
Útgefandi
  • MCA Canada
  • Maverick
  • Reprise
  • Warner Bros.
  • Collective Sounds
  • Rough Trade
Vefsíðaalanis.com
Undirskrift

Árið 2005 varð Morissette bandarískur ríkisborgari en hélt kanadíska ríkisborgararétti sínum.

Uppeldisár

Morissette fæddist í Ottawa, Ontario í Kanada, dóttir Georgiu Mary Ann (fædd Feuerstein), kennara sem fæddist í Ungverjalandi, og Alans Richard Morissette, fransks-kanadísks grunnskólastjóra. Foreldrar Morissette voru heittrúaðir kaþólskir. Morisette er tvíburi og tvíburabróður hennar heitir Wade. Þau eiga einn eldra bróður sem heitir Chad. Þegar hún var sex ára gömul byrjaði hún á að spila píanó. Árið 1984 samdi Morissette fyrsta lagið sitt, Fate Stay with Me, sem hún sendi til Lindsay Morgan þjóðlagasöngvara, sem gerði Morissette að skjólstæðingi sínum. Morissette gaf út Fate Stay with Me á smáskífu hjá plötufyrirtæki sem þær Morissette og Morgan stofnuðu saman. Takmarkað magn eintaka var gefið út og platan var ekki mikið spiluð í útvarpi. Í grunnskóla, en hún gekk í St. Elizabeth's, var Morissette sérlega talin vel gefin og tók þátt í verkefni fyrir snjalla nemendur. Á grunnskólaaldri fór hún í Immaculata High School og Glebe Collegiate Institute í Ottawa en samtímis hélt áfram að hlúa að tónlistarferli sínum. Árið 1986 mætti hún oft í sjónvarpsþáttinn You Can't Do That on Television á CTV/Nickelodeon. Árið 1987 tók hún þátt í fyrstu Rising Star hæfileikakeppninni sem held er í Toronto við Canadian National Exhibition.

Hljómplötur

  • Alanis (1991)
  • Now Is the Time (1992)
  • Jagged Little Pill (1995)
  • Supposed Former Infatuation Junkie (1998)
  • Under Rug Swept (2002)
  • So-Called Chaos (2004)
  • Flavors of Entanglement (2008)
  • Havoc and Bright Lights (2012)
  • Such Pretty Forks in the Road (2020)
  • The Storm Before the Calm (2022)

Kvikmyndir og sjónvarpsþættir

Kvikmynd
ÁrKvikmyndHlutverk
1999DogmaGuð
2001Jay and Silent Bob Strike Backsjálf
2004De-Lovelyónefndur söngvari
2005Fucksjálf
2010Radio Free AlbemuthSylvie
Sjónvarpsþættir
ÁrÞátturHlutverk
1986You Can't Do That on Televisionsjálf
1999Sex and the CityDawn
2002Curb Your Enthusiasmsjálf
2004American DreamsSöngvari í greni
2005Degrassi: The Next GenerationSkólaststjóri
2006Lovespring InternationalLucinda
2006Nip/TuckPoppy
2009–2010WeedsDr. Audra Kitson
Leikrit
ÁrTitill
1999The Vagina Monologues
2004The Exonerated
2010An Oak Tree

Heimild