29. október

dagsetning
SepOktóberNóv
SuÞrMiFiLa
12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031
2024
Allir dagar


29. október er 302. dagur ársins (303. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 63 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1187 - Gregoríus 8. gaf út páfabulluna Audita tremendi og hvatti til Þriðju krossferðarinnar.
  • 1268 - Eftir að Klemens 5. páfi dó tók næri þrjú ár að kjósa nýjan páfa. Það varð til þess að reglur um páfakjör voru hertar mjög.
  • 1449 - Hundrað ára stríðið: Enska setuliðið í Rúðuborg gafst upp fyrir her Karls 7. Frakkakonungs.
  • 1591 - Giovanni Antonio Facchinetti var kjörinn páfi sem Innósentíus 9.
  • 1665 - Portúgalir sigruðu Kongóveldið í orrustunni við Mbwila og drápu konunginn Anton 1. af Kongó.
  • 1787 - Óperan Don Giovanni eftir Wolfgang Amadeus Mozart var frumflutt í Prag.
  • 1914 - Tyrkneski flotinn réðst á rússneskar hafnir við Svartahaf. Í kjölfar þess lýstu Rússar, Frakkar og Bretar stríði á hendur Tyrkjaveldi.
  • 1919 - Alþýðublaðið kom út í fyrsta sinn. Fyrsti ritstjóri þess var Ólafur Friðriksson.
  • 1922 - Í húsinu Grund, sem stóð við Kaplaskjólsveg í Reykjavík, var hafinn rekstur elliheimilis. Átta árum síðar var nýtt hús tekið í notkun fyrir starfsemina og hlaut það nafnið Elliheimilið Grund.
  • 1925 - Einnar krónu og tveggja krónu peningar voru settir í umferð í fyrsta sinn, en áður hafði verið slegin 10 aura og 25 aura mynt.
  • 1929 - Svarti þriðjudagurinn þegar hlutabréf á Wall Street hrundu sem aftur olli kreppunni miklu.
  • 1936 - Raftækjaverksmiðjan Rafha var stofnuð á Íslandi.
  • 1947 - Tyrkneska tímaritið Şalom hóf göngu sína í Istanbúl.
  • 1964 - Julius Nyerere tók við embætti sem fyrsti forseti Tansaníu.
  • 1986 - Margaret Thatcher opnaði formlega M25-hraðbrautina umhverfis London.
  • 1988 - Leikjatölvan Sega Genesis kom út í Japan.
  • 1990 - Ríkisstjórn Syse í Noregi féll vegna deilna um aðild Norðmanna að Evrópusambandinu.
  • 1991 - Bandaríska geimfarið Galileo komst í námunda við loftsteininn 951 Gaspra.
  • 1993 - Íslenska kvikmyndin Hin helgu vé var frumsýnd.
  • 1994 - Francisco Martin Duran skaut tugum skota að Hvíta húsinu í Washington D.C.
  • 1998 - Fellibylurinn Mitch gekk yfir Mið-Ameríku með þeim afleiðingum að um 18.000 fórust.
  • 1999 - Odisha-fellibylurinn gekk yfir Indland með þeim afleiðingum að um 10.000 fórust.
  • 2004 - Samningur um stjórnarskrá fyrir Evrópu var undirritaður. Honum var síðar hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi.
  • 2005 - Sprengjutilræðin í Delí 2005: 61 létust og margir særðust þegar 3 öflugar sprengjur sprungu í Delí á Indlandi.
  • 2008 - Danska flugfélagið Sterling Airways varð gjaldþrota.
  • 2010 - Stöð 1 hóf útsendingar á Íslandi.
  • 2010 - Nagoya-bókunin við Samning Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni var gerð í Japan.
  • 2012 - Fellibylurinn Sandy gekk á land í Bandaríkjunum og skildi eftir sig slóð eyðileggingar, meðal annars í New York-borg og New Jersey.
  • 2013 - Lestargöngin Marmaray undir Bospórus voru tekin í notkun.
  • 2016 - Alþingiskosningar voru haldnar á Íslandi.
  • 2018 - 189 fórust þegar Lion Air flug 610 hrapaði undan ströndum Jövu.

Fædd

Dáin