Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
24. október er 297. dagur ársins (298. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 68 dagar eru eftir af árinu.
996 - Róbert 2. varð konungur Frakklands.1260 - Dómkirkjan í Chartres var vígð að viðstöddum Loðvík 9. Frakkakonungi.1604 - Za Dengel var drepinn í orrustu og Jakob 1. varð aftur keisari Eþíópíu.1648 - Þrjátíu ára stríðinu lauk með undirritun friðarsamninga í Münster í Vestfalíu. Samningarnir fólu meðal annars í sér viðurkenningu á sjálfstæði Sviss .1857 - Knattspyrnuliðið Sheffield FC var stofnað á Englandi. Það er elsta knattspyrnulið heims.1885 - Óperettan Sígaunabaróninn var frumsýnd í Vínarborg.1901 - Annie Edson Taylor varð fyrst til að lifa af fall niður Niagarafossana í tunnu og var þetta á 63 ára afmælisdag hennar.1919 - Fyrsta tölublað Alþýðublaðsins kom út.1938 - Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) var stofnað á Vífilsstöðum.1944 - Ein mesta björgun við Íslandsstrendur, þegar 198 manns var bjargað af kanadíska tundurspillinum Skeena , sem fórst við Viðey. Með skipinu fórust um fimmtán manns.1945 - Sameinuðu þjóðirnar urðu til sem alþjóðasamtök.1964 - Norður-Ródesía fékk sjálfstæði frá Bretlandi og varð Sambía .1970 - Salvador Allende var kjörinn forseti Chile.1972 - Togarinn Vigri kom til Reykjavíkur, en hann var fyrstur í röð fimmtíu skuttogara sem voru keyptir á fáum árum.1975 - Kvennafrídagurinn 1975: Íslenskar konur lögðu niður vinnu til þess að sýna fram á mikilvægi kvenna í atvinnulífinu.1975 - Sjónvarpsútsendingar í lit hófust hjá Ríkisútvarpinu .1984 - Ríkisstjórn Eþíópíu óskaði eftir aðstoð umheimsins eftir að miklir þurrkar leiddu til hungursneyðar.1987 - Tvö af virtustu tónlistarblöðum í Bretlandi höfðu Sykurmolana á forsíðu sinni og stuðlaði það að því að plata þeirra seldist í milljón eintökum.1987 - Borgarnes fékk kaupstaðarréttindi.1988 - Stöð 2 stóð fyrir heimsbikarmóti í skák , sem fram fór í Borgarleikhúsinu í Reykjavík og lauk með sigri heimsmeistarans, Garrí Kasparov .1989 - Íslandsdeild samtakanna Barnaheill var stofnuð.1990 - Pakistanski þjóðarflokkurinn beið ósigur fyrir bandalagi hægri-miðjuflokka með flokkinn Íslamska demókratabandalagið í broddi fylkingar.1997 - Bresk-bandaríska kvikmyndin A Life Less Ordinary var frumsýnd.1998 - Norska sápuóperan Hotel Cæsar hóf göngu sína á TV 2.2002 - Leyniskyttuárásirnar í Washington 2002: John Allen Muhammad og Lee Boyd Malvo voru handteknir þar sem þeir sváfu í bíl sínum á hvíldarstæði í Maryland .2003 - Síðasta áætlunarflug Concorde-þotu var flogið.2003 - Stýrikerfið Mac OS X Panther var kynnt til sögunnar.2010 - Íslensku gamanþættirnir Hlemmavídeó hófu göngu sína á Stöð 2.2010 - Gerpla vann Evrópumeistaratitilinn í fimleikum, fyrst íslenskra liða.2013 - Nýr 10.000 króna seðill var settur í umferð. Prentuð voru 4.000.000 stykki af honum eða 40 milljarðar króna.2015 - Þúsundum mótmælenda sem kröfðust afsagnar Milo Đukanovićs lenti saman við lögreglu í Podgorica í Svartfjallalandi.2017 - Vefmiðillinn Nýja Ísland hóf göngu sína í Noregi.2019 – Lík spænska einræðisherrans Francisco Franco var fjarlægt úr grafarminnismerki í Dal hinna föllnu og endurgreftrað í kirkjugarði í Madríd.51 - Dómitíanus , keisari Rómaveldis (d. 96 ). 1632 - Antoni van Leeuwenhoek , hollenskur lífvísindamaður (d. 1723 ).1641 - Christian Röhrensee, þýskur stjórnmálafræðingur (d. 1706 ).1869 - Guðmundur Friðjónsson , íslenskur rithöfundur (d. 1944 ).1883 - Jakobína Johnson , vesturíslenskur þýðandi og skáld (d. 1977 ).1891 - Rafael Trujillo , einræðisherra Dóminíska lýðveldisins (d. 1961 ).1894 - Gunnar Halldórsson formaður Knattspyrnufélagsins Fram (d. 1962 ).1900 - Karl Ottó Runólfsson, íslenskt tónskáld (d. 1970 ).1925 - Toshio Iwatani , japanskur knattspyrnumaður (d. 1970 ).1930 – J.P. Richardson, The Big Bopper , bandarískur tónlistarmaður (d. 1959 ).1950 - Kozo Arai , japanskur knattspyrnumaður.1965 - Magnús Jónsson , íslenskur leikari.1966 – Roman Abramovítsj, rússneskur viðskiptamaður.1968 - Osmar Donizete Cândido , brasilískur knattspyrnumaður.1985 – Wayne Rooney , enskur knattspyrnumaður.1989 - PewDiePie , sænsk YouTube-stjarna.1994 - Naomichi Ueda , japanskur knattspyrnumaður.996 - Húgó Kapet , Frankakonungur (f. um 941).1375 - Valdimar atterdag , Danakonungur (f. 1320 ).1537 - Jane Seymour, Englandsdrottning (f. um 1508).1575 - Peder Oxe, danskur stjórnmálamaður (f. 1520 ). Með honum dó ein helsta aðalsætt Danmerkur út.1601 - Tycho Brahe , danskur stjörnufræðingur (f. 1546 ).1604 - Za Dengel , Eþíópíukeisari.1655 - Pierre Gassendi , franskur heimspekingur (f. 1592 ).1667 - Gabriel Metsu , hollenskur listmálari (f. 1629 ).1852 - Daniel Webster, bandarískur stjórnmálamaður (f. 1782 ).1870 - Charles Joseph Minard , franskur verkfræðingur (f. 1781 ).1918 - Daniel Burley Woolfall , enskur forseti FIFA (f. 1852 ).1945 - Vidkun Quisling , norskur stjórnmálamaður og landráðamaður (f. 1887 ).1957 - Christian Dior , franskur tískukóngur (f. 1905 ).1958 - G.E. Moore , enskur heimspekingur (f. 1873 ).1991 - Eugene Wesley Roddenberry , bandarískur handritshöfundur (f. 1921 ).2001 - Seishiro Shimatani , japanskur knattspyrnumaður (f. 1938 ).2002 - Hernán Gaviria , kólumbískur knattspyrnumaður (f. 1969 ).2002 - Örlygur Sigurðsson , íslenskur listmálari (f. 1920 ).2002 - John Rawls , bandarískur heimspekingur (f. 1921 ).2005 - Rosa Parks , baráttukona fyrir réttindum blökkumanna (f. 1913 ).2009 - Flosi Ólafsson , íslenskur leikari, leikstjóri og rithöfundur (f. 1929 ).2012 - Jens Tómasson , íslenskur jarðfræðingur (f. 1925 ).
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni