1298 - Orrustan við Gölheim: Albert af Habsborg vann sigur á Adolf 1. en hann hafði verið settur af sem konungur Þýskalands nokkrum dögum áður og Albert kjörinn konungur í staðinn.
1505 - Marteinn Lúther hét því að gerast munkur eftir að hafa orðið dauðskelfdur í þrumuveðri. Hann gekk svo í klaustur í Erfurt tveimur vikum seinna.
1698 - Enski verkfræðingurinn Thomas Savery fékk einkaleyfi fyrir nýrri gufuknúinni vatnsdælu.
1849 - Jón Sigurðsson og fleiri alþingismenn gerðu þá kröfu að Alþingi yrði háð í heyranda hljóði.
1874 - Á Oddeyri í Eyjafirði og víðar á Norðurlandi var haldin þjóðhátíð í minningu þúsund ára byggðar í landinu. Slík hátíð var haldin mánuði síðar annars staðar.
1876 - Alls 752 Norðlendingar fluttust búferlum til Ameríku; þeir lögðu af stað með skoska gufuskipinu Verona frá Akureyri til Glasgow þennan dag og sigldu síðan þaðan til Ameríku. Þetta var stærsti hópurinn sem fór í einni ferð til vesturheims. Tíu dögum síðar fór 400 manna hópur með sama skipi frá Seyðisfirði.
1907 - Tveir Þjóðverjar fórust í Öskjuvatni þar sem þeir voru við rannsóknir. Minningartafla um þetta slys var sett upp 1951.
1948 - Þriðji landsleikur Íslendinga í knattspyrnu var gegn Finnum og unnu Íslendingar með 2:0. Þetta var fyrsti sigur íslenska landliðsins í knattspyrnu.
1981 - Meðlimir Wonderland-gengisins í Los Angeles voru myrtir.
1982 - Larry Waters flaug í 4.900 metra hæð yfir Long Beach í Kaliforníu í garðstól með helíumblöðrur festar við hann.
1982 - Sprengja sprakk í geymsluhólfi á Aðaljárnbrautarstöðinni í Osló með þeim afleiðingum að 19 ára stúlka lést. Átta dögum síðar fannst önnur ósprungin sprengja í öðru hólfi. Átján ára piltur reyndist standa á bak við tilræðin.
1991 - Tíu daga stríðið: Bardagar brutust út milli Júgóslavneska alþýðuhersins og aðskilnaðarsinna í Slóveníu.
1993 - 37 létust þegar múgur heittrúaðra múslima lögðu eld að hóteli þar sem þýðandi Söngva Satans, Aziz Nesin, dvaldi í Sivas í Tyrklandi.
1993 - 266 fórust þegar fljótandi kapella í Bulacan á Filippseyjum sökk.
1994 - Kólumbíski knattspyrnumaðurinn Andrés Escobar var skotinn til bana í Medellín. Talið er að morðið hafi verið hefnd fyrir sjálfsmark sem hann skoraði á landsleik gegn liði Bandaríkjanna í heimsmeistarakeppni landsliða.
1996 - Bræðurnir Lyle og Erik Menendez voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í Los Angeles fyrir að myrða foreldra sína.
2014 - Morðið á Mohammed Abu Khdeir: Ísraelskir landnemar rændu og myrtu palestínskan táning í hefndarskyni fyrir þrjá ísraelska táninga sem Hamas myrti 12. júní.