1679
ár
Árið 1679 (MDCLXXIX í rómverskum tölum) var 79. ár 17. aldar sem hófst á sunnudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en miðvikudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Árþúsund: | 2. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Atburðir
- 24. janúar - Karl 2. Englandskonungur leysti kavaleraþingið upp.
- 26. janúar - Svíar sömdu um frið við Heilaga rómverska ríkið í Nijmegen.
- 1. júní - Skoskir sáttmálamenn unnu sigur á stjórnarhernum í orrustunni við Drumclog.
- 22. júní - James Scott hertogi af Monmouth vann sigur á sáttmálamönnum í orrustunni við Bothwell Brig.
- 7. ágúst - Brigantínan Le Griffon var dregin að suðurenda Níagarafljóts og varð fyrsta skipið sem sigldi um Erie-vatn, Huron-vatn og Michigan-vatn.
- 26. september - Friðarsamkomulagið í Lundi batt enda á Skánska stríðið.
Fædd
- 24. janúar - Christian Wolff, þýskur heimspekingur (d. 1754).
- 16. október - Jan Dismas Zelenka, bæheimskt tónskáld (d. 1745).
Dáin
- 23. febrúar - Anne Conway, enskur heimspekingur (f. 1631).
- 3. maí - Jón Ólafsson Indíafari (f. 1593).
- 4. desember - Thomas Hobbes, enskur heimspekingur (f. 1588).
Ódagsett
- Jónas Rugman, íslenskufræðingur (f. 1636).
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaÍslenski þjóðhátíðardagurinnFjallkonanKerfissíða:Nýlegar breytingar17. júníJón Sigurðsson (forseti)Erpur EyvindarsonKerfissíða:LeitBrúðkaupsafmæliCarles PuigdemontÁgúst Bent SigbertssonFeðradagurinnMeð allt á hreinuBeinbrunasóttHver á sér fegra föðurlandMúsíktilraunirÍslandFiann PaulÍslenski fáninnFullveldisdagurinnWikipedia:HeimildirHofsjökullHljómsveitListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaStuðmennÍslenski þjóðbúningurinnFullveldiXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Hæsta hendinÞjóðhátíðardagurListi yfir íslensk mannanöfnXXXEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024Lýðveldishátíðin 1944Listi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSeinni heimsstyrjöldinHalla TómasdóttirLand míns föður