Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
16. september er 259. dagur ársins (260. á hlaupári ) samkvæmt gregoríska tímatalinu . 106 dagar eru eftir af árinu.
1345 - Jóhann 5. varð hertogi af Bretagne , fimm ára að aldri, en móðir hans, Jóhanna af Flæmingjalandi, stýrði Montfort-arminum í Bretónska erfðastríðinu þar til hann varð fullveðja.1380 - Karl 6. Frakkakonungur (f. 1368 ) tók við ríki eftir lát föður síns, Karls 5.1408 - Síðustu heimildir um norræna menn á Grænlandi geta um brúðkaup í kirkjunni í Hvalsey þennan dag.1464 - Pietro Barbo varð Páll 2. páfi.1508 - Ferja sökk á Ölfusá með tugi manna og fórust yfir 30 manns, sem voru að koma frá krossmessu í Kaldaðarnesi í Flóa , en þar var kross, sem var einn merkasti kirkjugripurinn í kaþólskri tíð á Íslandi . Krossinn var tekinn niður og eyðilagður eftir siðaskiptin .1607 - Floti Mölturiddara og Flórensbúa rændi borgina Hippone á strönd Alsír til að hefna sjórána .1621 - Svíar unnu borgina Ríga frá Pólverjum .1666 - Shabbetaï Zevi snerist til íslam frammi fyrir Tyrkjasoldán .1678 - Brandenborgarar lögðu Rügen undir sig.1761 - Ólafur Stephensen og Sigríður Magnúsdóttir voru gefin saman í hjónaband í Leirárkirkju.1761 - Sjö ára stríðið : Rússar náðu prússnesku borginni Kolberg á sitt vald.1810 - Mexíkó lýsti yfir sjálfstæði frá Spáni.1893 - Lög voru staðfest, sem tóku Austur-Skaftafellssýslu undan Suðuramti og lögðu hana til Austuramtsins.1936 - Vísindamaðurinn Jean-Baptiste Charcot fórst ásamt 37 öðrum skipverjum þegar rannsóknaskipið Pourquoi-pas? fórst í ofviðri í skerjagarðinum við Álftanes á Mýrum .1940 - Tvö íslensk skip, Arinbjörn hersir og Snorri goði , björguðu um 400 manns af franska flutningaskipinu Asca , en það fórst á Írlandshafi eftir árás þýskrar flugvélar.1944 - Sprengjuflugvél frá bandaríska flughernum með tíu manna áhöfn brotlenti ofarlega á norðanverðum Eyjafjallajökli . Eftir tveggja daga vist í flakinu náði áhöfnin að ganga niður af jöklinum við illan leik og komast til byggða.1963 - Lyndon B. Johnson , varaforseti Bandaríkjanna, kom til Íslands í opinbera heimsókn og var vel tekið.1970 - Hussein , konungur Jórdaníu setti herlög í landinu til að hindra palestínska uppreisnarmenn í að ná þar völdum.1975 - Papúa-Nýja Gínea fékk sjálfstæði frá Ástralíu .1976 - Blýantanóttin: Hópi námsmanna var rænt af útsendurum herforingjastjórnarinnar í Argentínu. Þau voru síðan pyntuð og flest þeirra myrt að talið er.1979 - Minnisvarði var afhjúpaður á Hólmavík um Hermann Jónasson ráðherra, sem var í áraraðir þingmaður Strandamanna og Vestfirðinga.1981 - Fyrsti þátturinn í þáttaröðinni Pósturinn Páll var sendur út á BBC 1.1982 - Blóðbaðið í Shabra og Shatila hófst þegar Líbanski framvörðurinn réðist inn í flóttamannabúðir í Beirút og myrti milli 762 og 3500 manns.1983 - Ronald Reagan tilkynnti að GPS-staðsetningarkerfið yrði opnað fyrir almenna notendur.1984 - Langholtskirkja var vígð í Reykjavík.1984 - Fyrsti kafli kvikmyndaraðarinnar Heimat eftir Edgar Reitz kom út í Þýskalandi.1985 - Líkamsræktarsalurinn World Class hóf starfsemi í Skeifunni í Reykjavík.1989 - Erró gaf Reykjavíkurborg tvö þúsund listaverk eftir sig og var safninu komið fyrir á Korpúlfsstöðum .1991 - Allar ákærur gegn Oliver North vegna þátttöku hans í Íran-Kontrahneykslinu voru felldar niður.1992 - Svarti miðvikudagurinn: Ítalska líran og breska pundið voru felld út úr gengissamstarfi Evrópu.1993 - Fyrsti þáttur bandarísku þáttaraðarinnar Frasier var sendur út á NBC.1994 - Danska leiðsögumanninum Louise Jensen var rænt, henni nauðgað og hún myrt að lokum af þremur breskum hermönnum á Kýpur .1999 - Íbúðasprengjurnar í Rússlandi: 17 létust þegar bílsprengja sprakk við fjölbýlishús í Volgodonsk.2000 - Úkraínski blaðamaðurinn Georgíj Gongadse sást síðast á lífi.1098 - Hildegard von Bingen , þýsk abbadís og dulspekingur (d. 1179 ).1387 - Hinrik 5. Englandskonungur (d. 1422 ).1584 - Matthias Gallas , austurrískur hershöfðingi (d. 1647 ).1797 - Anthony Panizzi , ítalskur lögfræðingur (d. 1879 ).1858 - Bonar Law , breskur stjórnmálamaður (d. 1923 ).1884 - Jack Binns , breskur loftskeytamaður (d. 1959 ).1888 - Frans Eemil Sillanpää , finnskur rithöfundur og nóbelsverðlaunahafi (d. 1964 ).1891 - Karl Dönitz , þýskur flotaforingi (d. 1980 ).1893 - Alexander Korda, ungverskur leikstjóri (d. 1956 ).1914 - Gunnar Nielsen formaður Knattspyrnufélagsins Fram (d. 1989 ).1920 - J.J.C. Smart , ástralskur heimspekingur (d. 2012 ).1923 - Lee Kuan Yew , fyrsti forsætisráðherra Singapúr.1924 - Lauren Bacall , bandarísk leikkona (d. 2014 ).1927 - Peter Falk, bandarískur leikari (d. 2011 ).1930 - Anne Francis , bandarisk leikkona (d. 2011 ).1939 - Roger Westman , enskur arkitekt (d. 2020 ).1940 - Ómar Ragnarsson , íslenskur söngvari, leikari og sjónvarpsmaður.1952 - Mickey Rourke, bandarískur leikari.1953 - Kurt Fuller , bandarískur leikari.1953 - Manuel Pellegrini , síleskur knattspyrnustjóri.1955 - Guillermo Lasso , forseti Ekvador.1956 - David Copperfield, bandarískur töframaður.1958 - Jennifer Tilly, bandarísk leikkona.1967 - Hrannar Björn Arnarsson , íslenskur stjórnmálamaður.1968 - Marc Anthony, bandarískur leikari og söngvari.1970 - Júríj Níkíforov , rússneskur knattspyrnumaður.1972 - Atli Rafn Sigurðarson , íslenskur leikari.1972 - Bárður á Steig Nielsen , færeyskur stjórnmálamaður.1974 - Loona , hollensk söngkona og dansari.1974 - Mario Haas , austurrískur knattspyrnumaður.1979 - Keisuke Tsuboi , japanskur knattspyrnumaður.1980 - Davíð Þorláksson , íslenskur lögfræðingur.1984 - Katie Melua, georgísk-bresk söngkona.1985 - Fábio Santos , brasilískur knattspyrnumaður.1985 - Johan Absalonsen , danskur knattspyrnumaður.1992 - Nick Jonas , bandarískur söngvari (Jonas Brothers ).307 - Severus 2. Rómarkeisari. 655 - Marteinn 1. páfi. 1343 - Filippus 3. Navarrakonungur (f. 1306 ).1380 - Karl 5. Frakkakonungur (f. 1338 ).1394 - Klemens 7. mótpáfi (f. 1342 ).1498 - Tomás de Torquemada, leiðtogi spænska rannsóknarréttarins (f. um 1420 ).1583 - Katrín Jagellon, drottning Svíþjóðar, kona Jóhanns 3. Svíakonungs (f. 1526 ).1701 - Jakob 2. Englandskonungur (f. 1633 ).1736 - Daniel Gabriel Fahrenheit, þýskur vísindamaður (f. 1686 ).1824 - Loðvík 18. Frakkakonungur (f. 1755 ).1902 - Konrad von Maurer , þýskur sagnfræðingur (f. 1823 ).1917 - Kristján Eldjárn Þórarinsson , prestur í Svarfaðardal (f. 1843 ).1932 - Ronald Ross , skoskur læknir (f. 1857 ).1936 - Jean-Baptiste Charcot , franskur vísindamaður (f. 1867 ).1944 - Gustav Bauer , þýskur stjórnmálamaður (f. 1870 ).1977 - Marc Bolan, enskur tónlistarmaður (f. 1947 ).1977 - Maria Callas , grísk-bandarísk óperusöngkona (f. 1923 ).1992 - Larbi Benbarek , marokkóskur knattspyrnumaður (f. 1917 ).2005 - Geirlaugur Magnússon , íslenskt ljóðskáld (f. 1944 ).2013 - Kim Hamilton , bandarisk leikkona (f. 1932 ).2021 - Vilborg Dagbjartsdóttir , íslenskur barnakennari og rithöfundur (f. 1930 ).
Mánuðir og dagar ársins
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Tengt efni