12. öldin
öld
12. öldin er tímabilið frá upphafi ársins 1101 til loka ársins 1200.
Árþúsund: | 2. árþúsundið |
Aldir: | 11. öldin · 12. öldin · 13. öldin |
Áratugir: | 1101–1110 · 1111–1120 · 1121–1130 · 1131–1140 · 1141–1150 |
Flokkar: | Fædd · Dáin · Stofnað · Lagt niður |
Atburðir og aldarfar
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a2/Notre_Dame_de_Paris_by_night_time.jpg/300px-Notre_Dame_de_Paris_by_night_time.jpg)
- Öldin er hluti hámiðalda, ásamt 11. og 13. öld.
- Bernharður frá Clairvaux stofnaði klaustrið í Clairvaux 1115 sem hafði mikil áhrif á klausturlifnað. Sistersíanareglan, angi af reglu heilags Benedikts, óx hratt alla öldina.
- Krossferðir stóðu sem hæst á þessari öld. Konungsríkið Jerúsalem hafði verið stofnað í kjölfar Fyrstu krossferðarinnar 1099 og stóð þar til það beið ósigur fyrir Saladín soldán í orrustunni við Hattin 1187.
- Fyrstu riddarareglurnar urðu til í tengslum við krossferðirnar.
- Endurheimt Spánar úr höndum mára hélt áfram. Portúgal varð sjálfstætt konungsríkis undir stjórn Afonsos 1. eftir orrustuna við Ourique 1139. Í Marokkó náðu Almóhadar völdum af Almoravídum um miðja öldina.
- Átökin við hinn íslamska heim og aukin samskipti við Austrómverska ríkið leiddu til enduruppgötvunar texta klassískrar fornaldar og hefur það verið kallað tólftu aldar endurreisnin sem var undanfari ítölsku endurreisnarinnar á 14. öld.
- Um miðja öldina hófst gotneskur stíll í byggingarlist í Frakklandi sem tilraun til að skapa mynd af hinni himnesku Jerúsalem á jörðu.
- Kaþólska kirkjan sóttist eftir auknu sjálfsforræði gagnvart veraldlegum höfðingjum varðandi skipan embætta, málefni klerka og forráð kirkjujarða í kjölfar sáttagerðarinnar í Worms 1122. Deilur Hinriks 2. og Thomas Becket í Englandi sem leiddu til morðsins á Becket 1170 voru angi af þessu líkt og staðamálin fyrri sem Þorlákur helgi Þórhallsson hóf á Íslandi 1179.
- Norski innanlandsófriðurinn hófst við lát Sigurðar Jórsalafara 1130 og lauk að mestu með sigri birkibeina og konungdæmi Sverris Sigurðssonar árið 1184.
- Í Kína missti Songveldið norðurhluta Kína til Jursjena sem stofnuðu þar Jinveldið 1115. Í suðurhlutanum kom Songveldið á fót fyrsta fasta herflota Kína sem sigraði stærri flota Jinveldisins í orrustunni við Tangdao á Jangtsefljóti 1161, meðal annars með því að nota sprengjur með byssupúðri sem varpað var á skip óvinanna með valslöngvum.
Ár 12. aldar
12. öldin:
🔥 Top keywords: XXX RottweilerhundarForsíðaÍslenski þjóðhátíðardagurinnFjallkonanKerfissíða:Nýlegar breytingar17. júníJón Sigurðsson (forseti)Erpur EyvindarsonKerfissíða:LeitBrúðkaupsafmæliCarles PuigdemontÁgúst Bent SigbertssonFeðradagurinnMeð allt á hreinuBeinbrunasóttHver á sér fegra föðurlandMúsíktilraunirÍslandFiann PaulÍslenski fáninnFullveldisdagurinnWikipedia:HeimildirHofsjökullHljómsveitListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaStuðmennÍslenski þjóðbúningurinnFullveldiXXX Rottweilerhundar (breiðskífa)Hæsta hendinÞjóðhátíðardagurListi yfir íslensk mannanöfnXXXEvrópukeppnin í knattspyrnu 2024Lýðveldishátíðin 1944Listi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSeinni heimsstyrjöldinHalla TómasdóttirLand míns föður