Óregluleg sögn

Óreglulegar sagnir eru ólíkt reglulegum sögnum þær sagnir sem falla utan hefðbundinna sagnbeyginga þess tungumáls sem þær eru í.

Hvaða sagnir teljast til óreglulegra sagna fer mjög eftir tungumálinu. Í ensku eru sterk beygðar sagnir taldar óreglulegar, en í fornensku eru þær taldar reglulegar.

Fjöldi óreglulegra sagna í mismunandi tungumálum

Á meðan hugtakið „óregluleg sögn“ er torskilgreint þá ætti taflan að neðan að sýna hve mikið þetta fyrirbæri fer eftir tungumálum.

TungumálFjöldi[heimild vantar]Ummæli
Latína924 
Ítalskafleiri en 400 
Þýska181Sögnin sein „að vera“ er eina algjörlega óreglulega sögnin í þýsku.
Enska178 
Danska131 
Franska81 
Sænska76 
Hollenska55 
Spænska46 
Velska11 
Finnska≤4 + 4 
Japanska≤5する suru „að gera, 来る kuru „að koma“, 行く iku „að fara“, ある aru „að vera [til] (notað yfir dauða hluti)“, og くれる kureru „að gefa (sá sem tekur við er alltaf sá sem talar eða einhver náskyldur honum, t.d. fjölskyldumeðlimur. Sá sem gefur er einhver sem er á sama eða lægra stigi en sá sem talar)" eru óreglulegar. Það eru líka nokkrir sagnflokkar með afar fáum sögnum, eða sagnbeygingar sem notast við marga stofa (skipta má sögnunum aisuru og aisu „að elska“ út án þess að hrófla við merkingunni, en sú fyrri er ekki nokuð í ákveðnum formum eins og í boðhætti), sumir telja þetta óregluleika á meðan aðrir gera það ekki.
Úkraínska≤3Бути „að vera“, їсти „að borða“, давати „að gefa“ eru einu óreglulegu grundvallar sagnirnar.
Lettneska3þessar þrjár sagnir eru būt, iet, dot
Kínverska1yǒu myndar neikvæða merkingu með 没 méi frekar en 不 í Mandarín og hefur aðskilda neikvæða merkingu 冇 mou í Kantonsku
Quechua1Aðeins sögnin kay „að vera“ er óreglulega.
Tyrkneska0
Esperanto0(eins og flest tilbúin tungumál)

Tengt efni

  • Óregluleg sögn á ensku

Tenglar