Velkomin á Wikipedíu

Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameiningu

Á hinni íslensku Wikipedíu eru nú 58.670 greinar.

Grein mánaðarins

Aleksandra Kollontaj var marxísk byltingarkona úr röðum mensévika og síðan bolsévika frá árinu 1915. Á árunum 1917–1918 var Kollontaj þjóðfulltrúi heilbrigðismála í ríkisstjórn bolsévika eftir rússnesku byltinguna. Hún var fyrsta kona í heimi sem hlaut ráðherrastöðu í ríkisstjórn lands. Árið 1922 varð Kollontaj meðlimur í sendinefnd Sovétríkjanna til Noregs og varð brátt formaður hennar. Hún var ein fyrsta kona í heimi sem fór fyrir slíkri nefnd.

Í fréttum

Keir Starmer

Yfirstandandi: Átökin í Súdan  • Borgarastyrjöldin í Jemen  • Innrás Rússa í Úkraínu / Stríð Rússlands og Úkraínu  • Stríð Ísraels og Hamas  • Sýrlenska borgarastyrjöldin

Nýleg andlát: Shelley Duvall (11. júlí)  • Jon Landau (5. júlí)  • Ragnar Stefánsson (25. júní)  • Donald Sutherland (20. júní)


Atburðir 16. júlí

  • 1999 - Flugvél með John F. Kennedy yngri, Carolyn Bessette Kennedy eiginkonu hans og systur hennar fórst á Atlantshafi. Allir um borð létust.
  • 2001 - Bandaríska alríkislögreglan handtók Dmítrí Skljarov fyrir meint brot gegn Digital Millennium Copyright Act.
  • 2005 - Skáldsagan Harry Potter og blendingsprinsinn kom út á sama tíma um allan heim. 287.564 eintök seldust að meðaltali á hverri klukkustund fyrsta sólarhringinn.
  • 2009 - Alþingi samþykkti með 33 atkvæðum gegn 28 (tveir sátu hjá) að senda umsókn um aðild til Evrópusambandsins. Allir flokkar voru klofnir í afstöðu nema Samfylkingin.
  • 2019 - Ursula von der Leyen var kjörin forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fyrst kvenna.
  • 2023 - Tvítugur Spánverji, Carlos Alcaraz, vann Wimbledon-mótið þegar hann sigraði Serbann Novak Djokovic.

Vissir þú...

Morðið á Abraham Lincoln
Morðið á Abraham Lincoln
  • … að fyrirhuguð stytta af kettinum Sushi í Garðabæ verður fyrsta styttan reist til heiðurs ketti á Íslandi?
Efnisyfirlit